Innlent

„Ég söng aldrei þennan útrásarsöng“

Davíð Oddsson
Davíð Oddsson

Davíð Oddsson seðlabankastjóri var gestur í Kastljósi Sjónvarpsins nú í kvöld og fór þar um víðan völl. Hann sagði m.a að sendinefnd á vegum Seðlabankans fari til Moskvu að ræða hugsanlegt lán á næstu dögum. Þar verði tekið á móti nefndinni með jákvæðu hugarfari og Pútín sjálfur hafi heimilað með undirskrift sinni að þessar viðræður færu fram.

Aðspurður afhverju leitað væri til Rússa af öllum sagði Davíð að hann hefði rætt við marga aðra og þessar yfirlýsingar Norðmanna í dag ættu líklega við að ekki hefði verið leitað til þeirra í dag eða gær. Hann vildi meina að hugsanlegt lán Rússa til okkar væri vinabragð í erfiðleikum og lagði áherslu á að menn gerðu Rússa ekki tortryggilega. „Við þurfum á vinum að halda".

Davíð lagði áherslu á að aðgerðir síðustu daga miði að því að íslenska Ríkið ætli ekki að greiða skuldir íslensku bankanna. Hann sagði mikilvægt að fólk áttaði sig á þessu því Íslenska ríkið væri ekki í hættu þó síður væri.

„Við ætlum ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna," sagði Davíð sem útskýrði orðaval sitt sem svo að amma hans hefði kennt sér að þeir sem ekki greiddu skuldir sínar væru óreiðumenn.

„Áður trúðu menn því að íslenska ríkið og skattgreiðendur myndur reyna að borga allar skuldir íslensku bankanna. En þegar skuldirnar eru orðnar svo stórar þá getum við ekki lagt það á börnin okkar og barnabörnin að borga upp skuldir annarra manna."

Davíð upplýsit einnig að umrætt lán sem veitt var Kaupþing banka fyrir skömmu væri upp á 500 milljón evrur og væri til skamms tíma. „Við vildum gefa þessum banka tækifæri á að spreyta sig og falla ekki í valinn vegna harkalegra aðgerða," sagði Davíð.

Ef allt færi á versta veg ætti Seðlabankinn þá mjög góðan banka í Danmörku, FIH, en veð í þeim banka var látið af hendi fyrir láninu.

Aðspurður hvort verið væri að mismuna bönkunum með það í huga hvernig fór fyrir Glitni vildi Davíð ekki bera þetta tvennt saman. Veðin sem Glitnir bauð hefðu einfaldlega ekki veirð nógu góð. „Þetta var allskonar samtíningur og m.a. bílalán sem við kjósum að kalla ástarbréf."

Aðspurður um örlög Glitnis sagði Davíð málið ekki lengur vera í höndum Seðlabanka Íslands. „Þetta er í höndum Glitnis og þess aðila, ríkissins, sem hefur tilkynnt að hann ætli að leggja fram hlutafé í bankann eftir hluthafafund sem á að vera á laugardaginn. En það verður að vera til banki, ríkið hefur ekki lagt neina peninga í þetta ennþá því hluthafarnir, aðaleigendurnir drógu að halda fundinn. Ef hann hefði verið haldinn á mánudaginn hefði ríkið neyðst til þess að koma inn með 84 milljarða."

Davíð sagðist aldrei hafa borið mikið lof á þessa svokölluðu útrás sem honum hefði alltaf þótt mikið furðurverk. Hann viðurkenndi að hann hefði ásamt öðrum rutt leiðina og opnað allt hér í sinni tíð í ríkisstjórn.

„Það þýðir ekki að ég beri ábyrgð á þeim mönnum sem fara ógætilega með þá hluti sem þessi útrás byggði á. Að skuldsetja eignarhaldfélög, fá lán í bönkum og halda að þessi spilaborg gæti gengið til eilífðar. Ég söng aldrei þennan útrásarsöng."

Aðspurður hvort hann hefði hugleitt að hætta í Seðlabankanum sagðist Davíð hætta á stundinni ef hann héldi að það leysti einhvern vanda.

„Það hefur hinsvegar enginn nefnt það við mig, ég hef bara séð það. Ef ég teldi mig hafa unnið til þess þá væri það sjálfsagt. En það er þannig að það hefur verið nokkuð vel rekin sjoppa sem hefur haldið uppi látlausum árásum á mig í 3-4 ár, þar hefur verið mikil ósanngirni á ferðinni."














Fleiri fréttir

Sjá meira


×