Titilvonir FH lifa enn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. september 2008 18:25 Atli Viðar Björnsson skoraði tvö og lagði upp eitt í dag. Mynd/Anton Brink
FH vann í dag sannfærandi 3-0 sigur á Breiðabliki í frestuðum leik úr átjándu umferð Landsbankadeildar karla. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik en Blikar klúðruðu vítaspyrnu í þeim síðari. Sigurinn var þó aldrei í hættu hjá heimamönnum. Þetta þýðir að FH á enn möguleika á Íslandsmeistaratitlinum fyrir lokaumferðina í deildinni sem fer fram á laugardaginn. Þetta er þó enn í höndum Keflvíkinga sem verða meistarar með sigri á Fram um helgina. Ef liðin gera jafntefli og FH vinnur sinn leik á Fylki ræðst titilbaráttan á markatölu. FH er nú með 23 mörk í plús en Keflavík 24 auk þess sem Keflvíkingar hafa skorað talsvert meira af mörkum í deildinni. Atli Viðar Björnsson skoraði tvö marka FH í dag auk þess sem hann lagði upp eitt til viðbótar. Fyrsta markið kom á sjöundu mínútu eftir hornspyrnu og klafs í teignum. Bæði lið sóttu nokkuð eftir það og fengu bæði góð færi til að skora næsta mark í leiknum. En það voru heimamenn sem urðu fyrri til og Atli Guðnason var þar að verki eftir sendingu Atla Viðars. Atli stóð af sér varnarmenn Blika og náði að senda boltann laglega í fjærhornið. Þriðja markið kom svo í blálok hálfleiksins, í þetta sinn eftir varnarmistök Blika. Tryggvi Guðmundsson kom boltanum á Atla Viðar sem lét fyrst verja frá sér einn gegn Vigni markverði en náði frákastinu og kom boltanum í netið. Jóhann Berg Guðmundsson hefði getað minnkað muninn í síðari hálfleik með marki úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. En hann lét Gunnar Sigurðsson verja frá sér slaka spyrnu. Eftir það var aldrei spurning um úrslit leiksins. FH-ingar sóttu meira en tókst þó ekki að bæta við fjórða markinu. Fylgst var með gangi mála á Boltavaktinni
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Svíþjóð - Ísland | Allt undir á útivelli Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Í beinni: Arsenal - Manchester United | Stórveldi slást um stigin þrjú Enski boltinn Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Sú besta í heimi er ólétt Sport Með hendur fyrir aftan bak í fimm hundruð metra hæð Sport Fleiri fréttir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Sjá meira