Heiðar vill vera áfram hjá Bolton Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. maí 2008 15:13 Heiðar í baráttu við þá Nicky Butt og Alan Smith hjá Newcastle. Nordic Photos / Getty Images
Heiðar Helguson segir í samtali við Vísi að hann vilji sjálfur vera áfram hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Bolton þó svo að staða hans hjá félaginu sé ekki góð. „Mín staða er ekkert allt of góð eins og er," sagði Heiðar. „En stundum er þetta bara svona. Ég er til í að vera áfram sjálfur en hef þó ekkert rætt við Megson um mín mál." „Það er mikið um að vera á bak við tjöldin hjá félaginu og margir starfsmenn farnir. Ég held líka að margir leikmenn séu á leið í burtu en hvort ég verði einn af þeim verður bara að koma í ljós. Það kæmi mér samt ekki á óvart." Heiðar gekk til liðs við Bolton síðastliðið sumar eftir tveggja ára veru hjá Fulham. Hann skrifaði undir þriggja ára samning. „Ég á því enn tvö ár eftir af samningi mínum og mér liggur því ekkert á," bætti Heiðar við. Hann náði aðeins að spila átta leiki á tímabilinu, þar af fimm í byrjunarliði, en hann skoraði tvö mörk í þeim leikjum. Meiðsli hafa verið að hrjá hann allt tímabilið en á mánudaginn gekkst hann undir aðgerð þar sem loksins tókst að komast að rót vandans. „Ég hef aldrei náð mér almennilega af þessum meiðslum þó svo að ég hafi verið að æfa. En það var bein aftan á hælnum sem þurfti að fjarlægja og vonandi er þetta þar með úr sögunni. Ég ætti að vera orðinn klár þegar undirbúningstímabilið hefst í sumar." Bolton náði naumlega að bjarga sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinn í vor og segir Heiðar að það hafi verið mikill léttir þegar sætinu var borgið. „Þetta leit ekkert sérstaklega vel út þegar það voru fimm leikir eftir en þá hrukku þeir í ganga og náðu að redda þessu."
Mest lesið Endaði á sjúkrahúsi eftir árás frá kú Sport Elsti maraþonhlaupari sögunnar varð fyrir bíl og lést Sport Trump fékk alvöru bikarinn en Chelsea aðeins eftirlíkingu Fótbolti Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Enski boltinn Liverpool tilbúið að slá metið aftur Enski boltinn Einn af hinum smávöxnu í afmæli Yamal kemur stráknum til varnar Fótbolti Totti í harðri forræðisdeilu um fjögur Rolex úr Fótbolti Seldu fyrir 44 milljónir evrur meira en þeir borguðu Man. Utd ári áður Sport „Það var engin taktík“ Fótbolti Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Sjá meira