Miðvikudagsleikjunum hugsanlega frestað Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. ágúst 2008 15:40 Úr leik KR og Fylkis frá því fyrr í sumar.
Verið er að skoða hvort færa eigi leiki miðvikudagskvöldsins í Landsbankadeild karla vegna heimkomu íslensku ólympíufaranna. Ólympíufararnir verða hylltir á Austurvelli klukkan 18.30 á miðvikudag en ekið verður með þá fyrst niður Laugaveginn. Tveir leikir eru á dagskrá á miðvikudaginn í Landsbankadeild karla. Annars vegar viðureign Fylkis og KR klukkan 18.00 á Fylkisvelli og hins vegar mætast Fram og Fjölnir á Laugardalsvelli klukkan 20.00. Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, sagði í samtali við Vísi að verið væri að vinna í þessum málum. „Þetta fór strax í gang um leið og við heyrðum af dagskrá ólympíufaranna. En þetta er í höndum félaganna og þau verða að taka sameiginlega ákvörðun um þetta mál," sagði Birkir. Örn Hafsteinsson, framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar Fylkis, sagði að það væri í mörg horn að líta vegna leik Fylkis og Fjölnis í undanúrslitum bikarkeppninnar á sunnudaginn. „Báðir þessir leikir áttu upphaflega að fara fram á fimmtudaginn en þegar okkar leikur var færður til miðvikudagsins fylgdi Fjölnisleikurinn með. Það þýðir að ef það á að færa okkar leik aftur á fimmtudaginn þarf hinn að fylgja með." „Þetta er því engin skyndiákvörðun. Að sama skapi er ljóst að það þarf að taka þessa ákvörðun í dag."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Enski boltinn Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé Íslenski boltinn Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé Bríet Fjóla keypt til Þróttar Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Ari Leifsson í Stjörnuna Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Sjá meira