Öruggt hjá Arsenal gegn Reading Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. apríl 2008 13:38 Cesc Fabregas og Ibrahima Sonko. Nordic Photos / Getty Images
Arsenal vann afar öruggan sigur á Reading í dag, 2-0, og hefðu getað skorað mun fleiri mörk. Reading á því enn harða fallbaráttu fyrir höndum. Emmanuel Adebayor og Gilberto Silva skoruðu mörk Arsenal í fyrri hálfleik. Theo Walcott fékk óvænt sæti í byrjunarliði Arsenal á kostnað Emmanuel Eboue og þá var Jens Lehmann í marki liðsins þar sem Manuel Almunia á við meiðsli að stríða. Arsenal byrjaði leikinn mun betur og kom því ekki á óvart þegar fyrsta marki leit dagsins ljós á 30. mínútu. Emmanuel Adebayor var þar að verki með sitt 27. mark á tímabilinu en hann fékk sendingu frá Kolo Toure og afgreiddi knöttinn laglega í netið. Aðeins átta mínútum síðar skoraði Arsenal síðara markið. Fabregas lagði boltann út á Gilberto sem skaut að marki nokkrum metrum utan vítateigsins. Boltonn hafði hins vegar viðkomu í Andre Bikey og af honum fór boltinn í markið. Arsenal fékk fjöldamörg tækifæri til að bæta við mörkum. Robin Van Persie átti glæsilegt skot í markrammann beint úr aukaspyrnu og Walcott átti sömuleiðis skot í slá skömmu síðar. Allt kom þó fyrir ekki og Reading fékk ekki mörg færi í leiknum. Alex Hleb var þó afar heppinn að fá ekki rautt þegar hann virtist slá til Graeme Murty en öll kurl eru sennilega ekki enn komin til grafar í því máli. Reading er því enn í sextánda sæti deildarinnar með 32 stig og þarf að stóla á að liðin fyrir neðan í töflunni vinni ekki sína leiki um helgina.
Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Sjá meira