Dennis getur spilað með FH gegn Breiðabliki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. september 2008 11:13 Dennis Siim, leikmaður FH. Mynd/Vilhelm
Dennis Siim er óheimilt að taka út leikbann í leik FH og Breiðabliks á næstkomandi miðvikudag er liðin mætast í frestuðum leik. Siim fékk áminningu í leik FH og Vals í 19. umferð Landsbankadeildar karla þann 13. september síðastliðinn. Það var hans fjórða gula spjald á leiktíðinni og hann hefði átt að vera í leikbanni í leik FH og Keflavíkur í gær. Hins vegar urðu mannleg mistök til þess að áminningin fór ekki inn í gagnagrunn KSÍ og það uppgötvaðist ekki fyrr en fjallað var um málið í Landsbankamörkunum á Stöð 2 Sporti í gær. „Það er líklegt að um mannleg mistök hafi verið að ræða," sagði Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ, í samtali við Vísi. „Kannski datt kerfið eitthvað út eða eitthvað því líku. En nú verður það leiðrétt og tekið fyrir á fundi nefndarinnar." Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ fundar á morgun þar sem Siim verður úrskurðaður í eins leiks bann vegna mistakanna. Hins vegar er honum beinlínis óheimilt að taka út leikbannið í leik Breiðabliks og FH á miðvikudaginn þar sem úrskurðir aganefndar taka ekki gildi fyrr en á hádegi á föstudeginum eftir fundinn. „Úrskurðir aga- og úrskurðarnefndar skulu almennt taka gildi við uppkvaðningu þeirra eða eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Úrskurðir nefndarinnar varðandi agamál taka hins vegar gildi kl. 12 á hádegi næsta föstudag frá birtingu þeirra. Óheimilt er að taka út viðurlög í agamálum áður en úrskurðir taka gildi, nema um sjálfkrafa leikbann sé að ræða," segir í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál, þriðja kafla, níundu grein. Þórir segir einfalt mál hvað hafi gerst en Jóhannes Valgeirsson, dómari leiks FH og Vals, sendi inn rétta skýrslu til KSÍ með áminningunni hans Siim. „Skýrslurnar eru forskrifaðar af félögunum og farið svo yfir þær hjá KSÍ. Þau mistök voru gerð að spjaldið sem var í leikskýrslunni hjá dómaranum var ekki skráð í gagnagrunninn." Keflavík er heimilt að kæra málið þar sem FH notaði leikmann í gær sem með réttu hefði átt að vera í leikbanni. FH braut þó ekki af sér, þar sem ekki var búið að úrskurða Siim í leikbann og leikmönnum er óheimilt að taka út leikbann öðruvísi en eftir að úrskurður tekur gildi. Siim hefur þó fengið tvö gul spjöld síðan að aga- og úrskurðarnefnd fundaði síðast og verður því alls kominn með sex áminningar eftir að áðurnefnd mistök verða leiðrétt. Siim fékk gult í leik Fram og FH á miðvikudagskvöldið og svo aftur í leiknum gegn Keflavík í gær. Samkvæmt því verður hann því úrskurðaður í eins leiks bann fyrir fyrstu fjögur gulu spjöldin og svo í annað leikbann fyrir sjötta gula spjaldið sitt. Hann mun því ekki geta tekið út síðara leikbannið fyrr en í upphafi næstu leiktíðar.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Jóhannes: Ég gaf Dennis gult Jóhannes Valgeirsson, dómari leiks FH og Vals, staðfestir að Dennis Siim hafi fengið áminningu í leiknum sem þýðir að hann átti að vera í banni í leik Keflavíkur og FH í gær. 22. september 2008 10:41 Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Fleiri fréttir FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Sjá meira
Jóhannes: Ég gaf Dennis gult Jóhannes Valgeirsson, dómari leiks FH og Vals, staðfestir að Dennis Siim hafi fengið áminningu í leiknum sem þýðir að hann átti að vera í banni í leik Keflavíkur og FH í gær. 22. september 2008 10:41