Við höfum marga kosti fram yfir þær líka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. september 2008 18:28
Katrín Jónsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, er til í slaginn á móti Frökkum í leiknum mikilvæga á morgun. "Þær eru skráðar ofar en við á þessum FIFA-lista og eru kannski teknískari en við. Ég held að við höfum marga kosti fram yfir þær líka. Við erum líkamlega sterkari og við erum með skipulagðara lið. Þetta verður brjálæðislega erfiður leikur og það vitum við," segir Katrín sem segir að það gæti komið franska liðinu á óvart að íslenska liðið ætli ekki að breyta miklu frá því í síðustu leikjum. "Við munum halda áfram okkar leik og það mun kannski koma þeim á óvart að við skulum halda áfram að spila okkar leikstíl þótt við séum að fara að mæta liði sem þær vilja meina að sé betra en við," segir Katrín. Katrín er í nokkurri sérstæðri stöðu í íslenska liðinu því hún spilar vanalega sem miðjumaður hjá Val en er síðan komin í stöðu miðvarðar í íslensku vörninni. Katrín segist vera orðin vön því að skipta á milli. "Mér finnst þetta ekki vera mikið mál núna því ég er búin að gera þetta í svo mörg ár. Ég var oft að spila á miðjunni með félagsliði og var svo bakvörður með landsliðinu. Ég hef gert þetta lengi. Ég hef hingað til verið að spila við hliðina á Gunnu (Guðrúnu Sóleyju Gunnarsdóttur) sem er frábær miðvörður og það hefur gengið vel," segir Katrín og það er ljóst að íslenska vörnin hefur verið að spila frábærlega í ár enda aðeins búin að fá á sig 2 mörk í 9 leikjum. "Vörnin er búin að spila mjög vel og þá er ég ekki bara að tala um þessar fjórar öftustu. Varnarleikur liðsins er búinn að vera frábær og við verðum að halda því áfram því þannig höfum við unnið þessa leiki," segir Katrín og hún gerir sér vel grein fyrir framlagi miðjumannanna því hún er oftast í því hlutverki með Val. "Þær á miðjunni hafa verið að standa sig frábærlega og þær eru að gera þetta auðveldara fyrir okkur fyrir aftan. Eitt það versta sem gerist þegar maður er miðjumaður er þegar teygist á liðinu. Það er hræðilegt fyrir miðjumennina að þurfa að vera að hlaupa á þvílíku svæði og ég hugsa um oft um það og við reynum því að halda liðinu í einum pakka," segir Katrín og nú er bara að vona að Katrín og félagar haldi áfram uppteknum hætti í varnarleiknum og nái að stoppa frönsku sóknina á morgun.
Fótbolti Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Messi skoraði fjögur í stórsigri Inter Miami Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Orri hetjan í fyrsta sigrinum Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Martröð Alberts og félaga í upphafi leiktíðar Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ „Allt liðið sem og félagið í heild stigið upp“ Campbell skoraði í góðum sigri nýliðanna Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Hlín með þrennu í öruggum sigri Malmö Ari var á skotskónum og tryggði Elfsborg í Evrópusæti Íslendingaliðið Kristianstad sótti öll þrjú stigin Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjá meira