Enski boltinn

Man City skoraði þrjú gegn Portsmouth

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Martin Petrov og Vedran Corluka fagna marki þess fyrrnefnda í dag.
Martin Petrov og Vedran Corluka fagna marki þess fyrrnefnda í dag. Nordic Photos / Getty Images

Manchester City vann 3-1 sigur á Portsmouth á lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en Hermann Hreiðarsson fékk að líta rauða spjaldið í leiknum.

Daruis Vassell, Martin Petrov og Benjani skoruðu mörk City en John Utaka skoraði eina mark Portsmouth.

Vassell tók stöðu Sun Jihai í byrjunarliði Manchester City sem þýddi að Elano lék í stöðu bakvarðar.

Hjá Portsmouth voru nokkrar breytingar á byrjunarliðinu en Lauren tók stöðu Glen Johnson sem er veikur og þeir Utaka og Lassana Diarra voru í liðinu í stað Sean Davis og Kanu.

City fékk óskabyrjun í leiknum er Benjani, fyrrum leikmaður Portsmouth, færði sér misskilning David James markvarðar og Sol Campbell í nyt. James var kominn langt frá markinu en Benjani náði að stela boltanum af honum og senda hann á Stephen Ireland sem sendi aftur boltann á Vassell en hann skoraði í autt markið af stuttu færi.

Aðeins tveimur mínútum síðar fékk Petrov boltann í vítateig Portsmouth og náði að skjóta að marki en boltinn hafði viðkomu í Campbell og af honum fór hann í markið.

Portsmouth náði þó að minnka muninn stuttu síðar eftir mikinn darraðadans í teig City. Jermain Defoe skallaði boltann að marki þar sem Utaka náði að pota boltanum fram hjá Joe Hart í marki City.

Áður en hálfleikurinn var liðinn fékk Hermann Hreiðarsson að líta rauða spjaldið fyrir að toga niður Darius Vassell en hann var aftasti varnarmaður. Dómaranum var því fárra kosta völ og gaf hann Hermanni rauða spjaldið.

Portsmouth fékk nokkur færi í síðari hálfleik og áttu leikmenn til að mynda skot í báðar stangir marksins í sömu sókninni.

En það var Benjani sem innsiglaði sigurinn fyrir City. Sendingin kom frá Ireland og Benjani afgreiddi knöttinn í netið með laglegu skoti.

City er í áttunda sæti deildarinnar með 55 stig og er þremur stigum á eftir Aston Villa sem er í sjötta sæti deildarinnar.

Portsmouth er svo í sjöunda sætinu, tveimur stigum á undan City.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×