Enginn uppgjafartónn í Hitzfeld Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. september 2008 14:02 Alexander Frei og Ottmar Hitzfeld ganga af velli í gær. Nordic Photos / AFP
Sviss tapaði í gær fyrir Lúxemborg í undankeppni HM 2010 og það á heimavelli. Hinn margreyndi landsliðsþjálfari Sviss, Ottmar Hitzfeld, sagði tapið eitt mesta áfallið á sínum ferli. Hitzfeld er einn sigursælasti þjálfari þýsku knattspyrnunnar en hann gerði bæði Borussia Dortmund og Bayern München að Evrópumeisturum. Sviss var gestgjafi á EM í sumar en þetta var fyrsti leikur Hitzfeld sem landsliðsþjálfari Sviss á heimavelli. Flestir bjuggust við öruggum sigri Sviss enda Lúxemborg í 152. sæti styrkleikalista FIFA. Aðeins tveir atvinnumenn eru í leikmannahópi Lúxemborgar en liðið hafði alls aðeins unnið tvo leiki í undankeppni HM frá upphafi. Sá þriðji bættist við í gær og sá fyrsti síðan 1972. Þangað til að Lúxemborg vann Hvíta-Rússland í undankeppni EM 2008 í fyrra hafði liðið tapað 55 leikjum í röð. „Þegar maður hefur úr svo mörgum góðum leikmönnum að velja verður maður ef til vill vanur því að fá þrjú stig úr svona leikjum. Það er því sérstaklega sárt að þola svona niðurlægingu og mikið áfall fyrir mig og okkur alla," sagði Hitzfeld á blaðamannafundi í dag. „Þetta er eitthvað versta tap sem ég hef mátt upplifa á mínum ferli. En ég er vanur því að takast á við tapleiki og verð nú að vera viss um að þessi reynsla styrki menn. Nú þarf liðið að þjappa sér saman og sýna enn meiri styrk en áður." Sviss hefur komist í úrslitakeppni stórmóta þrjú skipti í röð. Liðið er nú með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina í undankeppni HM 2010 en liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Ísrael á útivelli um helgina.
Mest lesið Þreytt á umræðu um líkamann sinn: „Á ekki að tjá sig um það“ Sport Hneysklaður á ósönnum orðrómum Fótbolti Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Enski boltinn Hættir ekki fyrr en hann skorar þúsund mörk Fótbolti Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Skynjar stress hjá Arsenal Enski boltinn Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Enski boltinn Enn kvarnast úr liði Blika Íslenski boltinn Ótrúleg tölfræði Jokic Körfubolti Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Knattspyrnustjórar eru ekki töframenn“ Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Hættir ekki fyrr en hann skorar þúsund mörk Skynjar stress hjá Arsenal Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Hneysklaður á ósönnum orðrómum Enn kvarnast úr liði Blika Jafnt í stórleiknum Martínez skaut Inter á toppinn Jöfnuðu 128 ára gamalt met Mahrez tryggði Alsíringum sigur Gray hetja Tottenham Højlund með tvö og Napoli í annað sætið Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Gömlu Chelsea-mennirnir skutu Milan á toppinn Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Sjá meira