Enski boltinn

Hargreaves frá út tímabilið

Elvar Geir Magnússon skrifar
Hargreaves er meiddur á vinstra hné.
Hargreaves er meiddur á vinstra hné.

Owen Hargreaves, miðjumaður Manchester United, mun ekki spila meira á þessu tímabili vegna stöðugra meiðsla á hné. Hann fór í aðgerð í síðustu viku og nú er ljóst að hann þarf að gangast undir frekari aðgerðir.

Hargreaves er 27 ára en ferill hans hjá Manchester United hefur einkennst af meiðslum og hann aðeins leikið 37 leiki fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×