Birkir Már: Ég er hlaupagikkurinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. september 2008 13:03 Birkir Már Sævarsson í góðum félagsskap í Noregi - með þeim Eiði Smára Guðjohnsen og Heiðari Helgusyni. Nordic Photos / AFP
Birkir Már Sævarsson segist ánægður með það hlutverk hjá íslenska landsliðinu sem Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur falið honum. Birkir lék á hægri kantinum gegn Norðmönnum um helgina og er ekki búist við öðru en að hann verði í sama hlutverki í kvöld. Ísland mætir Skotlandi í undankeppni HM 2010 klukkan 18.30 á Laugardalsvelli. „Ég var auðvitað sáttur við stigið í Noregi en það er alltaf eitthvað sem má laga. Það verður vonandi gert í næsta leik," sagði Birkir í samtali við Vísi. „Ég var sáttur við varnarvinnuna mína í leiknum en svo kom á daginn að ég var of aftarlega á vellinum. Ég hefði mátt vera duglegri að sleppa manninum og leyfa Grétari að taka hann. Við reyndum að laga það í seinni hálfleik og það gekk ágætlega." Hann neitar því ekki að hann er hlaupagikkurinn í liðinu. „Ég er ánægður með mitt hlutverk í liðinu. Ég á að geta hlaupið svona í 90 mínútur og er í góðu standi til þess. Ég hef líka gaman af því að geta bæði sinnt varnar- og sóknarhlutverki." Birkir segir að stemningin í íslenska leikmannahópnum er gríðarlega góð. „Hún er búin að vera frábær allan þennan tíma. Það mæta allir glaðir í bragði á æfingar og það er gaman að vera upp á hóteli." Hann gekk í sumar til liðs við Brann í Noregi frá Val og hefur nú fengið að spila stórt hlutverk með íslenska landsliðinu. Hann tekur þó lífinu með stóískri ró. „Ég er bara rólegur og nýtt þess bara," sagði Birkir. Hann hefur verið að spila á hægri kantinum með Brann að undanförnu. „Ég er nú fenginn þangað sem bakvörður en það voru meiðsli í þessari stöðu og því ákveðið að setja mig þangað. Það hefur gengið ágætlega en ég vona þó að ég fái tækifæri í bakverðinum fljótlega."
Mest lesið Jorge Messi látinn Fótbolti Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Fótbolti Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Íslenski boltinn Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Sport Framherjaleit Breiðabliks lokið Íslenski boltinn Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Golf Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Golf Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Fótbolti Grípa í taumana eftir banaslys Enski boltinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Fótbolti Fleiri fréttir Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí „Var bara eitthvað með hann ógeðslega lengi og svo bara skoraði ég“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-ÍBV 4-2 | Draumahálfleikur Emmu kláraði ÍBV Uppgjörið: Þór/KA-Fram 2-0 | Ungi miðvörðurinn hetja norðankvenna Víkingar kaupa Hrannar Snæ frá Noregi Gunnar Orri Olsen um frumraun sína með FCK: „Þetta er stórt!“ Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Sjá meira