Lífið

Jólalestin lögð af stað

Ljósum prýddir Coca-Cola trukkar Vífilfells keyra sinn árlega hring um höfuðborgarsvæðið í dag. Jólalestin hélt af stað fyrir um klukkutíma frá höfuðstöðvum Vífilfells að Stuðlahálsi. Hún mun ferðast um helstu hverfi höfuðborgarsvæðisins með stuttri viðkomu í Smáralind kl. 18:00. Þaðan verður ferðinni áfram haldið til kl. 20:00, en þá lýkur rúmlega 100 km löngu ferðalagi Jólalestarinnar á Stuðlahálsi, á sama stað og ferðin hófst.

Jólalestin samanstendur af fimm stórum flutningabílum, sem skreyttir eru með rúmlega tveim kílómetrum af ljósaseríum. Það tekur starfsmenn Vífilfells yfir 10 klukkutíma að skreyta bílana og hjálpast allir að. Jólalestin spilar öll þekktustu jólalögin á ferð sinni um borgina og dugir ekkert minna en sama hljóðkerfi og notað er á stórtónleikum í Laugardalshöll, til koma tónum Jólalestarinnar til skila. Það ætti því ekki að fara á milli mála hvenær hún er komin í þitt hverfi.

Það er orðinn fastur punktur í jólaundirbúningi fjölmargra fjölskyldna að fylgjast með Jólalestinni. Sumir safnast saman á ákveðnum stöðum þar sem lestin á leið um, en aðrir kjósa að fylgjast með henni af svölunum eða út um glugga. Talið er að á milli 10-15.000 manns fylgist með ferð lestarinnar um höfuðborgarsvæðið. Ung börn í fylgd foreldra sinna eru áberandi meðal þeirra sem fylgjast með lestinni, enda jólin þeirra hátíð og spennan og eftirvæntingin mikil í desembermánuði. Lestin verður í Spönginni í Grafarvogi um kl.16 og á Laugaveginum kl.17. Jólasveinnin verður í fremsta bílnum og veifar til barnanna. Nánari leiðarlýsingu Jólalestarinnar má finna hér.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill beina því til fólks að sýna aðgát og koma ekki of nálægt lestinni. Jólalestin ekur rólega í lögreglufylgd og björgunarsveitarmenn munu ganga meðfram henni við stærstu verslunarkjarna og á Laugaveginum þar sem fólk safnast saman, til að draga úr slysahættu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×