Íslenskir stuðningsmenn fjölmenna á völlinn Ómar Þorgeirsson í Osló skrifar 6. september 2008 15:32
Nú styttist í að leikur Íslands og Noregs hefjist í undankeppni HM 2010 á Ullevaal leikvanginum í Ósló. Búist er við því að Íslendingar búsettir í Ósló og á Norðurlöndunum muni fjölmenna á völlinn. Hópur harðkjarna stuðningsmanna frá Íslandi, sem kallar sig Áfram Ísland er einnig mættur til Óslóar. "Stuðningsmannahópurinn Áfram Ísland er búinn að vera starfandi í tíu ár núna og er stuðningsmannahópur íslenska landsliðsins, hvort sem er í fótbolta, handbolta eða hvaða annarri keppnisgrein. Markmiðið hjá okkur er að búa til smá stemningu fyrir landsleikina og skipuleggja alls kyns upphitanir og skrúðgöngur fyrir landsleikina," segir Ólafur Jóhannesson sem er í forsvari fyrir stuðningsmannahópinn og er eins og glöggir lesendur taka eftir, alnafni landsliðsþjálfara Íslands. "Ég fór aðeins og spjallaði við nafna minn landsliðsþjálfarann í gær og hann lýsti yfir ánægju sinni með að við værum mættir á svæðið. Ég tel reyndar Íslenska landliðið spila alltaf aðeins betur þegar við erum á vellinum," segir Ólafur ánægður. Áfram Ísland stóð fyrir upphitun fyrir leikinn í kvöld á kaffihúsinu Þrír bræður í miðborg Óslóar en þar var hægt að kaupa ýmsan varning tengdan landsliðinu og menn hittust og spjölluðu saman. Talið er að allt að 1000-1500 íslenskir áhorfendur verði á Ullevaal leikvanginum í kvöld en leikvangurinn tekur rétt rúmlega 25000 manns í sæti. -óþ
Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Fleiri fréttir Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Aston Villa - Manchester City | Missa gestirnir loksins stig? Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Dómur í Maradona-málinu fellur í desember Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM Sjá meira