Burley: Þurfum að sanna að við erum betri Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. september 2008 20:10 George Burley, landsliðsþjálfari Skota. Nordic Photos / Getty Images
George Burley segir að ef Skotar séu með betra lið en Ísland þurfi þeir að sanna það á Laugardalsvellinum annað kvöld. Burley er landsliðsþjálfari Skota en hann er enn að bíða eftir sínum fyrsta sigri eftir að hann tók við starfinu síðastliðinn vetur. Alls hefur hann stýrt Skotum í fjórum leikjum, þar af einum í undankeppni HM 2010. „Ísland náði góðum úrslitum á laugardaginn og er með gott lið sem hefur einbeitta og metnaðarfulla leikmenn í sínum röðum," sagði Burley á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í dag. Burley er vel þekktur meðal stuðningsmanna Ipswich enda lék hann þar í tólf ár, frá 1973 til 1985 og lék með liðinu í 394 leikjum og skoraði í þeim sex mörk. Hann hóf svo þjálfaraferil sinn hjá skoska liðinu Ayr United þar sem hann var einnig leikmaður. Hann kom aftur til Ipswich árið 1994 og þá sem knattspyrnustjóri liðsins. Þar var hann í átta ár og keypti meðal annarra Hermann Hreiðarsson til liðsins árið 2000. „Ég þekki auðvitað fyrirliðan þeirra, Hermann Hreiðarsson, mjög vel. Hann er mjög góður leikmaður sem gefur sig ávallt allan í leikinn," sagði Burley en Hermann fór frá Ipswich til Charlton árið 2003. „Svo eru þeir með Eið Guðjohnsen sem er leikmaður í heimsklassa að mínu mati. Hann lék með Barcelona gegn Hibernian ekki fyrir löngu og skoraði þar tvö góð mörk." Hann var spurður um stemninguna í skoska landsliðshópnum og sagði hann að hún væri góð. „Ég er fullviss um að leikmenn munu leggja sig alla fram þegar út í leikinn verður komið annað kvöld." Telur þú að skoska liðið sé betra en það íslenska? „Við þurfum að sanna á vellinum að við erum betri. Við erum alla vega vel undirbúnir og verðum vonandi klárir í slaginn." Skotland tapaði fyrir Makedóníu, 1-0, í fyrstu umferð undankeppninnar um síðustu helgi. „Það voru vissulega vonbrigði að ná ekki í stig í fyrsta leiknum. Við vorum þó betri aðilinn í seinni hálfleik og tökum það vonandi með okkur í þennan leik." Eftir tapið var Burley harkalega gagnrýndur í skoskum fjölmiðlum og lýsti hann yfir vonbrigðum sínum með viðbrögð skosku pressunnar. „Þeir mega auðvitað skrifa þar sem þeir vilja. En það er bara einum leik lokið og önnur lönd hafa tapað sínum fyrsta leik í undankeppnum stórmóta. Mér er til efs að þau hafi mátt þola sömu meðferð og skoskir fjölmiðlar hafa gefið síðustu daga." Hann segir þó aðalmálið vera leikinn á morgun. „Það er alveg ljóst að við höfum ekki efni á að tapa þessum leik. En svona er HM, ef lið ætla sér að komast í úrslitakeppnina þurfa þau að sýna að þau geti staðið sig vel í mörgum leikjum í röð."
Mest lesið Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Handbolti „Takk fyrir okkur en við þurfum fleiri stig“ Handbolti „Íslenska geðveikin sem við tölum oft um, þetta var hún“ Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti Fleiri fréttir Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Sjá meira