Stuðningsmenn komu í veg fyrir titilinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. apríl 2008 14:03 Frá leik Beitar Jerusalem. Nordic Photos / Getty Images
Stuðningsmenn ísraelska liðsins Beitar Jerusalem komu í veg fyrir að félagið yrði ísraelskur meistari um helgina og sló þannig fagnaðarhöldum félagsins á frest, að minnsta kosti. Beitar var að vinna 1-0 sigur á Maccabi Herzliya en sigur í leiknum hefði tryggt félaginu sinn annan meistaratitil í röð. Stuðningsmönnum félagsins tókst hins vegar ekki að hemja gleði sína og réðust inn á völlinn á 86. mínútu til að fagna titlinum. Eigandi félagsins, milljarðamæringurinn Arkady Gaydamak, hvatti alla til að halda ró sinni og yfirgefa völlinn en án árangurs. Flauta varð leikinn af og er ekki ljóst hvort hann verður endurtekinn eða Maccabi Herzliya verði dæmdur sigur í leiknum. Það gæti þó verið erfitt að taka þannig til ráða þar sem félagið á í harðri fallbaráttu í deildinni. Í upphafi þessa myndbrots má sjá stuðningsmenn Beitar hlaupa inn á völlinn. Í þessu myndbroti má svo sjá stuðningsmann Beitar borinn af velli á börum en hann ákvað allt í einu að standa og fætur til að slá til ljósmyndara. Eigandinn, Gaydamak, var allt annað en sáttur við hegðun stuðningsmannanna. „Við höfum engu að fagna enda töpuðum við. Ég veit ekki hvernig það má losna við þessa stuðningsmenn. Leikmenn okkar og aðrir starfsmenn hafa lagt mikið á sig og nú hafa þessir stuðningsmenn eyðilagt allt. Ég ber enga virðingu fyrir þeim. Þessir stuðningsmenn eru bastarðar og flón. Hvað mig varðar er Itzhak Schum (þjálfari) meistari, Eli Arazi (stjórnarformaður) er meistari, leikmennirnir eru meistarar en Beitar er ekki meistari."
Fótbolti Mest lesið Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Alfreð mætti með sína menn klára í leik upp á líf eða dauða Handbolti „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Enski boltinn Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga Enski boltinn EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði Handbolti „Það trompast allt þarna“ Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Fleiri fréttir Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Mourinho kallar nýjustu sögusagnirnar sápuóperu Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Guardiola um Haaland: „Hann svaf ótrúlega vel“ Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Hörður Björgvin tekinn af velli í hálfleik í unnum leik Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Guéhi genginn til liðs við City Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim „Þetta eru svakaleg kaup“ Slóst við boltastráka sem vildu stela handklæðinu Tískuspaðinn Þorleifur fer aftur út Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Karólína skoraði í sigri á Juventus Albert kom að marki í þriðja leiknum í röð Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Genoa ekki tapað í fjórum leikjum í röð Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Stefán Teitur sætti sig ekki við bekkjarsetu: „Það besta í stöðunni“ Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Sjá meira