Getum gert eins og Celtic Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. september 2008 11:07 Stephen McManus fagnar marki með skoska landsliðinu í undankeppni EM 2008. Nordic Photos / Getty Images
Stephen McManus er fyrirliði Celtic og lykilmaður í skoska landsliðinu. Hann segir að skoska landsliðið geti gert eins og Celtic þegar liðið varð meistari í vor. Skotland tapaði sínum fyrsta leik í undankeppni HM 2010 fyrir Makedóníu um helgina og George Burley, þjálfari liðsins, hefur mátt þola mikla gagnrýni skoskra fjölmiðla fyrir. McManus veit hins vegar að nóttin er ekki úti enn. Á síðasta keppnistímabili var Celtic lengi vel á toppi skosku úrvalsdeildarinnar en þegar liðið átti sjö leiki eftir var það sjö stigum á eftir Rangers sem átti þar að auki leik til góða. Það voru miklar vangaveltur um framtíð Gordon Strachan knattspyrnustjóra liðsins á þeim tíma og talið nánast víst að hann myndi ekki halda áfram með liðið á næstu leiktíð. En þá vann Celtic sjö síðustu leiki tímabilsins, þar af Rangers tvisvar, og vann á endanum skoska meistaratitilinn, þriðja árið í röð. Strachan hélt vitanlega starfi sínu. „Allir virðast halda að leikmönnum sé alveg sama þegar þeir tapa leikjum. Þá fara allir að gagnrýna liðið og leikmennina sem aldrei fyrr. En trúið mér, allir eru jafn slegnir yfir úrslitum helgarinnar. Við bara trúðum því ekki að við fengum ekkert úr leiknum því Makedónía er varla með besta lið í heimi." „Við fengum slæmt mark á okkur en náðum okkur á strik. Það var því enn verra þegar við þurftum að sætta okkur við tapið. Maður vill leiðrétta slík mistök sem allra, allra fyrst." „Svona er fótboltinn. Það eina sem má stóla á í fótboltanum að stundum gengur allt á afturfótum, annað hvort hjá leikmanninum sjálfum eða liðinu öllu. Maður gleymir því hins vegar aldrei. Það festist í huga manns." „Þetta var svipað á síðasta tímabili með Celtic þegar allir voru búnir að afskrifa okkur. Allir létu okkur fá það óþvegið og það jafnast ekkert á við að geta staðið beinn í baki þegar á endann er komið." Skotar eiga sjö leiki eftir í riðlakeppninni og vinni liðið alla þessa leiki er nokkuð ljóst að liðið kemst þannig á HM. En Skotar sætta sig við að byrja á sigri á Laugardalsvelli í kvöld.
Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Fleiri fréttir Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Aston Villa - Manchester City | Missa gestirnir loksins stig? Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Dómur í Maradona-málinu fellur í desember Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM Sjá meira