Góðir hlutir gætu komið út úr því að falla 20. september 2008 08:00 Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir. Mynd/Arnþór
Skagamenn féllu sem kunnugt er úr Landsbankadeild karla í fótbolta í fyrradag eftir markalaust jafntefli við KR á Akranesvelli en þetta er í þriðja skiptið í sögu ÍA sem félagið fellur úr efstu deild. „Það voru náttúrulega gríðarleg vonbrigði að falla og það má ef til vill segja að KR-leikurinn hafi endurspeglað sumarið hjá okkur hvað varðar lánleysi og annað," segir Bjarki Gunnlaugsson, sem þjálfar Skagaliðið ásamt tvíburabróður sínum Arnari. Arnar og Bjarki voru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki ÍA þegar félagið féll síðast úr efstu deild árið 1990 og Bjarki viðurkennir að tilfinningin að falla sé ekki góð, en það sem mestu máli skipti sé hvernig menn bregðist við þegar á móti blási. „Reynslan sem slík að falla er vitanlega ekki góð eins og gefur að skilja en ef þú nýtir þér hana á réttan hátt, þá geta góðir hlutir komið út úr því. Fallið knýr menn til þess að setjast niður og fara yfir málin og fá heildarmynd eða -sýn á hlutina og setja liðinu skýr markmið," segir Bjarki. ÍA vann 1. deildina með yfirburðum árið 1991 og vann svo Íslandsmeistaratitilinn í fimm ár í röð á árunum 1992-1996 þannig að fordæmið er vissulega til staðar á Akranesi. „Við viljum eðlilega fara aftur upp í efstu deild sem fyrst, en aðalatriðið er þó að við verðum þá komnir með lið sem er tilbúið að gera einhverja hluti þar. ÍA var alltaf þekkt sem sóknarlið en okkur hefur fundist sú hugsun hafa týnst svolítið á síðustu árum og ef við höldum áfram sem þjálfarar þá viljum við endurvekja þá ímynd og þann hugsunarhátt uppi á Skaga," segir Bjarki. Bjarki staðfesti að viðræður um að þeir bræður haldi áfram sem spilandi þjálfarar með Skagaliðinu væru vel á veg komnar. „Það eru ýmis mál sem við sjálfir erum að skoða, til að mynda í sambandi við þjálfararéttindi. Það er verið að kanna fyrir okkur hvort við getum klárað þau þjálfararéttindi sem við þurfum að hafa fyrir næsta tímabil með námskeiðum hjá PFA á Englandi. Það myndi ganga fljótar fyrir sig en námskeið hérlendis og við virðum það náttúrulega að menn þurfi að hafa tilskilin réttindi til að þjálfa."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Enski boltinn „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Fleiri fréttir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Sjá meira