Ólafur: Áttum að vinna leikinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. ágúst 2008 22:34 Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari. Mynd/E. Stefán
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari var ekki sáttur við að vinna ekki lið Asera á heimavelli í kvöld. Niðurstaðan var jafntefli, 1-1. „Ég segi ekki að mér fannst leikmenn vera hálfdaufir inn á vellinum en vissulega var fyrri hálfleikur fremur daufur af okkar hálfu. Það var margt ágætt við þennan leik en auðvitað eitthvað sem maður er ekki sáttur við. En það á að vera skylda að vinna svona leiki." „Við gáfum ekki mörg færi á okkur í þessum leik," bætti hann við. Næsti leikur íslenska landsliðsins er gegn Norðmönnum ytra í undankeppni HM 2010 og vill Ólafur ná að minnsta kosti stigi úr þeim leik. „Ef menn spila sinn leik og gefa sig alla þá verð ég sáttur. Ef það gerist tel ég að við getum fengið mjög góð úrslit í Noregi - en þá verðum við að spila alvöru leik." Hann var spurður um frammistöðu Jóhanns Bergs og sagðist Ólafur vera ánægður með hann í leiknum. Annars tjáði hann sig ekki mikið um einstaka leikmenn. Ólafur sagði þó að hann hefði verið sáttur við framlag Eiðs Smára í leiknum. „Hann skilaði því hlutverki sem ég ætlaðist til. Ég vildi koma honum meira inn í spilið og hann gerði það vel á köflum," sagði Ólafur og bætti því við að hann ætti ekki von á því að gera margar breytingar á hópnum fyrir Noregsleikinn. Ólafur hefur valið meira en 50 leikmenn í landsliðshópa sína síðan hann tók við starfi landsliðsþjálfara síðastliðið haust. „Ég er ánægður með þá leið sem ég hef valið. Ég veit að þetta eru margir leikmenn en við spiluðum líka nokkra leiki þar sem atvinnumennirnir stóðu okkur ekki til boða. En ég tel að allir þeir leikmenn sem ég hef prófað hafi átt landsliðssætið skilið." Veigar Páll var ekki valinn í hópinn að þessu sinni en Ólafur útilokaði ekki að velja hann aftur í liðið. Veigar sagði í samtali við norska fjölmiðla á dögunum að hann vildi gjarnan frá símtal frá Ólafi um ástæður þess að hann var ekki valinn. „Ef ég þyrfti að hringja í alla þá sem ég vel ekki þyrfti ég að hafa 20 manns í vinnu við það. Ég get ekki staðið í því og ég hugsa að það geri enginn í minni stöðu."
Fótbolti Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Sjá meira