Tottenham úr fallsæti Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. nóvember 2008 16:56 Darren Bent fagnar öðru marka sinna í dag. Nordic Photos / Getty Images
Tottenham tókst í dag að lyfta sér úr botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar og upp í það fimmtánda eftir 2-1 sigur á Manchester City á útivelli í dag. Þegar Juande Ramos var rekinn frá Tottenham var liðið með tvö stig en Tottenham hefur nú fengið tíu stig af tólf mögulegum síðan að Harry Redknapp tók við. Liðið vann í dag sinn þriðja sigur í röð og er á hraðferð upp stigatöfluna. Tottenham byrjaði betur í leiknum en það var City sem skoraði fyrsta markið úr nánast sinni fyrstu sókn í leiknum. Darius Vassell átti skot að marki sem Heurelho Gomes varði en boltinn féll beint fyrir fætur Robinho sem skoraði af öryggi. Markið kom á 16. mínútu og tíu mínútum síðan var Gelson Fernandes rekinn af velli í liði City fyrir sína aðra áminningu á átta mínútum. Fyrst fyrir óíþróttamannslega framkomu og svo fyrir tæklingu á David Bentley. Tottenham var ekki nema þrjár mínútur að færa sér liðsmuninn í nyt og jafnaði Darren Bent metin á 29. mínútu. Richard Dunne missti boltann klaufalega framhjá sér og var Bent þar mættur til að hirða boltann og skora. Hann var svo aftur á ferðinni á 64. mínútu með glæsilegu skoti úr erfiðri stöðu sem fór í stöngina og inn. Hann skoraði þrennu í Evrópuleik í vikunni og hefur nú skorað tíu mörk í fimmtán leikjum með Tottenham í öllum keppnum. Dunne fékk svo að líta beint rautt spjald fyrir brot á Darren Bent undir lok leiksins og lauk því City leiknum með aðeins níu leikmenn á vellinum. Hins vegar fékk Benoit Assou-Ekotto, leikmaður Tottenham, einnig að líta rauða spjaldið í lokin og fengu því alls þrír leikmenn að fjúka út af í leiknum. Þá gerðu vann Middlesbrough góðan sigur á Aston Villa á útivelli, 2-1. Tuncay kom Middlesbrough yfir á 34. mínútu eftir sendingu Stewart Downing en Steve Sidwell jafnaði metin fyrir Aston Villa með skalla aðeins þremur mínútum síðar. En Tuncay var aftur á ferðinni undir lok leiksins. Sidwell ætlaði að senda boltann á markvörð Villa en boltinn fór beint á Tuncay sem átti ekki í vandræðum með að skora. Aston Villa er í fimmta sæti deildarinnar með 20 stig en þetta var fyrsta tap liðsins á heimavelli í vetur. Middlesbrough er í áttunda sæti deildarinnar með sautján stig og Manchester City er í tólfta sæti með þrettán stig.
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira