Enski boltinn

Owen skoraði á afmælisdaginn

Michael Owen hélt upp á afmælið með glæsilegu marki
Michael Owen hélt upp á afmælið með glæsilegu marki AFP

Newcastle United vann í dag fyrsta útisigur sinn á leiktíðinni í ensku úrvalsdeildinni þegar það skellti Portsmouth 3-0 á Fratton Park.

Michael Owen hélt upp á 29. afmælisdaginn sinn með því að koma Newcastle yfir og Obafemi Martins skoraði annað markið meiddur skömmu eftir að hafa beðið um skiptingu.

Það var svo Danny Guthrie sem innsiglaði sigur Newcastle á heillum horfnu liði Portsmouth í lokin, en öll mörkin komu í síðari hálfleik.

Þeir Peter Crouch og Jermain Defoe fengu sín færi hjá heimamönnum en náðu ekki að nýta þau. Þeir félagar, litli og stóri, hafa skorað 75% marka Portsmouth í vetur.

Sigurinn fleytir Newcastle í 14. sæti deildarinnar og af mesta fallsvæðinu í bili. Portsmouth er í 8. sæti en hefur enn ekki náð sér á strik undir stjórn Tony Adams.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×