Zola gæti hætt hjá West Ham 14. desember 2008 14:34 NordicPhotos/GettyImages
Knattspyrnustjórinn Gianfranco Zola hjá West Ham hefur látið í það skína að hann muni hætta hjá félaginu ef það stendur ekki við þau áform sem uppi voru þegar hann tók við liðinu á sínum tíma. Ljóst er að staða West Ham er ekki glæsileg þar sem kreppan hefur komið þungt niður á Björgólfi Guðmundssyni eiganda félagsins. Talið er að Björgólfur sé tilbúinn til að selja West Ham og ljóst er að ekki verða til miklir peningar til leikmannakaupa á næstunni. Þá hangir Tevez málið yfir félaginu þar sem það gæti þurft að punga út tugum milljóna punda í skaðabætur. "Mér hefur verið sagt að ekkert breytist hjá félaginu en við skulum sjá til. Ef mér verður sagt að félagið þurfi að breyta um aðferðafræði, myndi ég þurfa að endurskoða mín mál líka því þá væru forsendur aðrar en voru upphaflega," var haft eftir Zola í News of the World í dag. "Þegar ég samþykkti að taka við félaginu var það af því hér átti að rækta þá leikmenn sem hér voru fyrir og byggja á yngri leikmönnum þangað til við gætum orðið samkeppnishæfir. Þetta var upphafleg áætlun okkar en síðan hefur eitt og annað gerst innan og utan vallar. Við þurfum tíma, en forráðamenn félagsins verða að ræða við mig ef á að breyta um stefnu," sagði Zola.
Enski boltinn Mest lesið Faðir leikmanns Grindavíkur gagnrýnir liðið: „Fyrir neðan allar hellur“ Körfubolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna fyrir oddaleik gegn Tindastól Körfubolti Mamma fór inn á völlinn og sparkaði í þrettán ára strák Sport Óhugnanlegt atvik á Brúnni Enski boltinn Grindvíkingar valda vonbrigðum og Stjarnan líklega án Seth LeDay Sport Segja að Alfreð og félagar ættu að ráða Solskjær Fótbolti Furðar sig á æðibunuganginum: „Bæði lið fá að bíða jafn stutt“ Körfubolti Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Enski boltinn Leik lokið: ÍBV 23-25 Valur | Valskonur einum sigri frá Íslandsmeistaratitli Handbolti Segist hafa skipt um hótel til að spara Fótbolti Fleiri fréttir Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Sjá meira