Margir leikmenn orðaðir við Tottenham 14. desember 2008 15:06 Sagt er að Redknapp verði með allar klær úti í janúar NordicPhotos/GettyImages
Svo virðist sem Tottenham sé oft það lið sem oftast er þungamiðjan í slúðrinu þegar leikmannamarkaðir á Englandi opna. Liðið hefur enda verið duglegt að versla undanfarin ár. Janúarglugginn í ár er engin undantekning og ekki minnkar slúðrið í kring um liðið eftir að Harry Redknapp tók við liðinu, enda tekur hann við búi Juande Ramos sem var með allt aðra aðferðafræði. Talið er víst að markvörðurinn Heurelho Gomes verði fyrsti maðurinn út um dyrnar þegar janúarglugginn opnast og Redknapp viðurkenndi í gær að vel gæti verið að hann myndi kaupa markvörð þó Gomes hafi rétt úr kútnum að undanförnu. Svo gæti jafnvel farið að fyrrum vinnuveitendur Gomes í PSV í Hollandi myndu reyna að fá Brasilíumanninn aftur í sínar raðir, en það yrði þá væntanlega með einhverjum afslætti frá þeim rúmu átta milljónum punda sem hann kostaði Tottenham í sumar. News of the World er fullt af félagaskiptaslúðri um Tottenham í dag og þar segir að Harry Redknapp ætli sér að ná í markvörðinn Robert Green og varnarmanninn Matthew Upson frá sínu gamla félagi West Ham. Einnig ku hann vera að undirbúa tilboð í Michael Owen frá Newcastle og þá mun hann ætla að reyna að fá Joe Cole frá Chelsea, en þeir unnu saman þegar þeir voru saman hjá West Ham á sínum tíma. Lítið gengur í samningaviðræðum Cole og Chelsea og því er talið að Redknapp reyni að ná í hann í janúar eða næsta sumar.
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira