Íslenski boltinn

Aron Einar í viðræður við Coventry

Elvar Geir Magnússon skrifar
Aron í búningi AZ Almaar.
Aron í búningi AZ Almaar.

Íslenski landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson er líklega á leið til Coventry sem leikur í ensku 1. deildinni. Hollenska liðið AZ Alkmaar hefur samþykkt tilboð frá enska félaginu í Aron.

Aron er nítján ára en hann er uppalinn hjá Þór Akureyri. Hann vann sér inn sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins á þessu ári og hefur byrjað síðustu þrjá landsleiki.

Aron er miðjumaður en hann lýsti því yfir fyrr á árinu að hann vildi komast burt frá AZ Alkmaar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×