Willum: Vorum staðráðnir í að ná sigri Elvar Geir Magnússon skrifar 18. september 2008 20:39 Willum Þór Þórsson.
Valsmenn unnu 2-0 sigur á Þrótti í Landsbankadeildinni í kvöld. Þróttarar fögnuðu þó meira eftir leikinn enda er nú ljóst að liðið heldur sæti sínu í deildinni. „Við vorum staðráðnir í því að ná sigri hér á heimavelli. Okkur fannst sem við ættum það inni hjá okkur sjálfum að gefa allt í þennan leik. Mér fannst við gera það ágætlega," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals. „Aðstæður voru erfiðar. Vindurinn var mikill en mér fannst leikmenn beggja liða leggja sig fram við það að halda boltanum á jörðinni. Menn vildu ekki láta vindinn taka yfir en í staðinn fengum við ekki mikla ógnun fyrir framan mörkin," sagði Willum. Fyrri hálfleikur var hreint út sagt hundleiðinlegur áhorfs og lítið markvert gerðist. Í seinni hálfleiknum komu Valsmenn af miklum krafti til leiks og voru búnir að skora tvö mörk eftir rúmar fimm mínútur. Helgi Sigurðsson og Guðmundur Steinn Hafsteinsson skoruðu mörkin. „Við vorum ekki mjög sáttir við leik okkar í fyrri hálfeik og ræddum það að okkur fannst sem við gætum farið hvassar á markið. Við vorum að spila flatt og ákváðum að fara þetta í færri snertingum. Það var mikill kraftur í okkur í byrjun seinni hálfleiks og það skóp sigurinn," sagði Willum. Valsmenn eru í harðri baráttu um Evrópusæti. „Eins og staðan er núna verður einn af úrslitaleikjunum um þetta þriðja sæti á sunnudaginn þegar við mætum Fram. Þetta er í okkar höndum að berjast um," sagði Willum að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Fleiri fréttir FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Sjá meira