Fjármálaeftirlitið tekur yfir Glitni 7. október 2008 22:30 Við höfuðstöðvar Glitnis Kirkjusandi í kvöld. MYND/ANTON BRINK
Fjármálaeftirlitið hefur skipað sérstaka skilanefnd um rekstur Glitnis, með vísan í 5. grein laga um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði. Stjórn Glitnis óskaði eftir því bréflega á mánudagskvöld að Fjármálaeftirlitið nýtti sér nýfengnar heimildir í lögum til að flýta fyrirhuguðum hluthafafundi til samþykktar á aukningu hlutafjár félagsins um 600 milljónir evra í samræmi við hlutafjárloforð ríkisins. Þetta segir í tilkynningu frá Þorsteini Má Baldvinssyni stjórnarformanni Glitnis. Þar segir ennfremur: „Fjármálaeftirlitið svaraði ekki þessari málaleitan. Vegna þessa gat ekki orðið af innborgun hlutafjárins í dag. Með því varð undir kvöld ljóst að skilyrði laganna um skilanefnd ættu við. Sú atburðarás sem ríkisstjórn og Seðlabanki Íslands hrundu af stað þann 29. september hefur haft ófyrirséðar afleiðingar fyrir Glitni og íslenskan fjármálamarkað. Aðdragandi málsins Þann 25. september síðastliðinn óskaði stjórnarformaður Glitnis eftir því að Seðlabanki veitti Glitni lán að upphæð 600 milljónir evra, gegn tryggingum að verðmæti um 1.345 milljónir evra. Beiðni Glitnis snerist óvænt upp í kaup ríkisins á 75% hlutafjár í Glitni. Stjórn og stærstu eigendum Glitnis var gerð grein fyrir því að aðrir kostir væru ekki í boði. Alvarlegar afleiðingar Fulltrúar Glitnis gerðu Seðlabanka grein fyrir því að slíkt inngrip gæti haft verulega alvarlegar afleiðingar fyrir íslenskt fjármálakerfi og samfélagið allt. Þessar viðvaranir reyndust því miður réttar og afleiðingarnar hafa nú komið í ljós. Við eðlilega fyrirgreiðslu til Glitnis hefði þetta ekki gerst. Aðgerð stjórnvalda leiddi ekki aðeins til vantrausts erlendra aðila á Glitni, heldur á íslenskum fjármálamarkaði sem aftur leiddi til lækkunar lánshæfismats fjármálastofnana og ríkisins. Lækkun lánshæfismats virkjaði ákvæði lánasamninga sem gerði það að verkum að bankinn þurfti að greiða upp hluta langtímalána fyrir gjalddaga. Neikvæð umfjöllun erlendra greiningaraðila og fjölmiðla varð einnig til þess að lánalínur lokuðust og skammtímafjármögnun varð enn erfiðari en ella fyrir Glitni og aðra íslenska banka. Glitnir upplýsti Seðlabanka um þessi áhrif sem á móti lýsti sig reiðubúinn til þess að styðja við lausafjárstöðu bankans. Af þeim stuðningi hefur enn ekki orðið frekar en greiðslu umsamins hlutafjárframlags ríkisins. Í því sambandi er rétt að árétta að tveir bankastjórar Seðlabankans, þeir Davíð Oddsson og Eiríkur Guðnason, undirrituðu sérstaka staðfestingu á ensku með fyrirsögninni "The government of Iceland acquires 75% share in Glitnir bank." Sú staðfesting var send erlendum lánveitendum bankans. Loforð og efndir Þegar ríkið veitti Glitni hlutafjárloforð sitt 29. september hafði Fjármálaeftirlitinu og Seðlabankanum verið veittur víðtækur aðgangur að nauðsynlegum gögnum um eignagæði, fjárhagstöðu og rekstur bankans. Þessir aðilar voru þannig vel upplýstir um sterka eignastöðu. Allar fullyrðingar um brostnar forsendur fyrir hlutafjáraukningu ríkisins eru því rangar. Afdrifarík ákvörðun Sú ákvörðun Seðlabanka að svara umleitan Glitnis með afarkostum til hluthafa hefur sett af stað keðjuverkun sem ekki sér fyrir endann á. Verndun verðmæta Stjórn Glitnis telur einsýnt að mikil verðmæti muni glatast og harmar það. Mikill auður felst í því fólki sem starfar hjá bankanum og þekkingu þess. Það er á ábyrgð ríkisins að gera allt sem í valdi þess stendur til að standa vörð um þau verðmæti. Stjórn Glitnis hvetur til þess að allt verði gert til að tryggja að starfsfólk Glitnis haldi störfum sínum. Fólkið okkar hefur staðið sig frábærlega í því mikla ölduróti sem verið hefur síðustu viku. Stjórn Glitnis færir starfsfólki bankans þakklæti sitt fyrir einstaklega vel unnin störf í þágu hans og óskar því velfarnaðar í framtíðinni. "
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent „Það er orrustan um Ísland“ Innlent Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Innlent Fleiri fréttir Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Sjá meira