Tíu þúsund munkar mótmæla í Myanmar 22. september 2007 18:58
Nærri tíu þúsund Búddamunkar mótmæltu herstjórninni í Myanmar í dag. Þetta eru umfangsmestu mótmælaaðgerðir í landinu í tæp tuttugu ár. Um eitt þúsund munkar í Yangon gengu framhjá vegatálum lögreglu inn í hverfið þar sem stjórnarandstöðuleiðtoginn Aung San Suu Kyi á heima. Larry Jagan sérfræðingur um málefni Myanmar segir að mótmæli munkana virki hvetjandi á almenning, sem sé orðinn langþreyttur á herforingjastjórninni. Munkarnir njóta mikillar virðingar í Myanmar og herstjórnin hefur varast að láta til skarar skríða gegn þeim. Hins vegar hafa um 150 óbreyttir borgarar verið handteknir, meðal annars fyrir að rétta munkum vatnskönnu. Herforingjastjórn hefur verið í Burma síðan 1962. Hún leyfði hins vegar kosningar árið 1990 en þegar stjórnarandstaðan undir forystu Aung San Suu Kyi vann þær voru kosningarnar ógiltar og Suu Kyi sett í stofufangelsi, sem hún hefur verið í að mestu undanfarin sautján ár. Hingað til hafa mótmælin farið friðsamlega fram en ef þau halda áfram að magnast er óvíst að herforingjastjórnin standi áfram aðgerðarlaus hjá.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Fleiri fréttir Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Sjá meira