Lögregla telur morðið á Sæbraut upplýst 30. júlí 2007 12:55
Lögreglan telur að morð á 35 ára gömlum manni á Sæbraut í Reykjavík í gær sé upplýst. Engu að síður er fjöldi þátta afar óljós sem tengist atburðarásinni og heldur lögreglan því áfram rannsókn sinni.Ekki hefur fengist gefið upp hjá lögreglu hvort sá sem framdi voðaverkið hafi átt byssuna sem notuð var. Leitt hefur verið getum að því að maðurinn sem var myrtur hafi verið að skipta um dekk á bíl sínum þegar hann varð fyrir árásinni. Lögregla hefur ekki getað svarað því hvort árásarmaðurinn hafi orsakað það með einhverjum hætti eða hvort hann hafi veitt hinum myrta eftirför.Eftir að maðurinn varð fyrir skotinu á Sæbrautinni flýði hann upp í sendiferðabíl sem átti leið hjá en þegar ökumaður þess bíls kom að var árásarmaðurinn á staðnum með morðvopnið í höndunum.Ökumaður sendibílsins lagði því á flótta og hann stöðvaði bíl sinn við sundlaugarnar í Laugardal til að leita hjálpar. Haft er eftir bílstjóranum í Fréttablaðinu í dag að ekki hefði séð á manninum þegar hann kom upp í sendibílinn en "svo fór blóðið að fossa úr honum í stríðum straumum," segir Eiríkur Eiðsson sendibílstjóri í samtali við Fréttablaðið.Að sögn læknis á bráðadeild sjúkrahússins í Fossvogi fór kúlan í gegnum brjóstholið við hægra lungað og lífgunartilraunir báru ekki árangur.Eftir skotárásina ók árásarmaðurinn til Þingvalla þar sem hann tók líf sitt með sama vopni og hann notaði við árásina á Sæbrautinni. Árásarmaðurinn skildi eftir sig bréf til lögreglu en hún hefur ekki gefið upp innihald þess. Lögreglan lýsti því yfir í gær að um harmleik væri að ræða en hinn myrti hafði átt í sambandi við fyrrverandi eiginkonu þess sem framdi voðaverkið. Í DV í dag er fullyrt að árásarmaðurinn hafi meðal annars verið illa haldinn af svefnleysi og djúpu þunglyndi vegna skilnaðarins.
Mest lesið Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Innlent Ísland frumstætt samanborið við Noreg Innlent „Á farsælum þrettán ára ferli hef ég bara heyrt af þessu tvívegis“ Innlent Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór Innlent Ekkert bendi til tengsla milli bankastuldsins og Gufunesmálsins Innlent Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Erlent Húsleit á heimili þekkts brotamanns Innlent Tilkynnt um par að slást Innlent Ekki allt sem sýnist varðandi launin Innlent Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Innlent Fleiri fréttir Ísland frumstætt samanborið við Noreg Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór „Á farsælum þrettán ára ferli hef ég bara heyrt af þessu tvívegis“ Ekkert bendi til tengsla milli bankastuldsins og Gufunesmálsins Tilkynnt um par að slást Norskir kafarar og dularfullur hraðbankaþjófnaður Líkið ekki innan um aðra sjúklinga Norsku kafararnir mættir í Haukadalsá Ekki allt sem sýnist varðandi launin Húsleit á heimili þekkts brotamanns Hraðari aflögun í Krýsuvík en áður Þess sem stýrir rannsókn að ákveða lengd símabanns fanga Fordæmisgefandi fyrir Ísland hvernig haldið verði á málum Úkraínu Sóttu skipverja á rússnesku skipi langt út á sjó og svo beint í Hrafntinnusker Kanna starfshætti, verklag og aðstæður Vöknuðu með rottu upp í rúmi Töldu mann ætla að nota riffil með hljóðdeyfi í Gufunesmálinu Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Flösku með bensíni kastað í hús í Hafnarfirði Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið „Réttu spilin og réttu vopnin“ „Það er hetja á Múlaborg“ Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Vesturbæjarlaug aftur lokað vegna viðgerðar Sjá meira