Innlent

Ala lömb á hvönn

Talið er að bragðbetra kjöt fáist ef lömbin eru alin á hvönn. Myndin er úr húsdýragarðinum.
Talið er að bragðbetra kjöt fáist ef lömbin eru alin á hvönn. Myndin er úr húsdýragarðinum. Mynd/ Hörður Sveinsson
Matvælarannsóknir Íslands (Matís) er byrjað að kanna hvaða áhrif það hefur ala íslensk lömb upp á hvönn.

Í fréttatilkynningu kemur fram að markmiðið sé að athuga hversu mikil bragðgæði felast í því að ala lömb upp á bragðsterkum gróðri í stað hefðbundinnar sumarbeitar. Stefnt sé að því að hefja sölu á lambakjöti sem byggi á slíkri sérstöðu ef verkefnið skili jákvæðum niðurstöðum.

„Verkefnið er að frumkvæði Höllu Steinólfsdóttur og Guðmundar Gíslasonar sauðfjárbænda að Ytri-Fagradal á Skarðsströnd. Þau hyggjast ala ákveðinn fjölda lamba í beitarhólfi þar sem hvönn vex. Til samanburðar verður öðrum lömbum komið fyrir í úthagabeit og á ræktuðu landi.

Rannsóknir hér á landi hafa sýnt að lömb sem eru alin upp við ólíkar aðstæður fyrir slátrun gefa mismunandi bragð. Þá er það þekkt erlendis frá að hægt sé að ala lömb fyrir slátrun upp við mismunandi aðstæður og skapa þar með ákveðna sérstöðu með sölu og markaðssetningu á kjöti.

Hvönn hefur verið notuð til að gefa bragð í mat og þykir góð sem kryddjurt. Matís mun skoða hvaða áhrif hvannabeit hefur á bragð kjötsins. Athugað verður hvort hægt sé að greina mun á bragði og áferð kjötsins eftir beit/fóðri. Sé um merkjanlegan mun að ræða verða allir þættir skynmats skoðaðir. Svo sem bragð, lykt, útlit og og áferð. Þá kemur í ljós í hverju munurinn er fólginn, eins og til dæmis hvort um aukabragð sé að ræða. Hjá Matís er sérhönnuð aðstaða fyrir skynmat samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. Þá býr Matís yfir skynmatshóp sem er sérstaklega þjálfaður fyrir mismunandi skynmatspróf.

MATÍS vinnur verkefnið í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands og Búnaðarsamtök Vesturlands," segir í tilkynningu frá þeim.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×