Handteknir fyrir að grýta unglingsstúlku í hel Óli Tynes skrifar 19. maí 2007 14:11
Fjórir menn hafa verið handteknir vegna morðsins á hinni 17 ára gömlu Dú'u Khalil Aswad sem var grýtt í hel í norðurhluta Íraks í byrjun apríl. Ástæðan fyrir morðinu var sú að Dú'a hafði orðið ástfangin af pilti af öðrum trúflokki. Dú'a tilheyrði trúflokknum Yezidi. Þeir tala kúrdisku en líta ekki á sig sem Kúrda. Þegar múgur hóf að leita hennar leitaði hún hælis hjá trúarleiðtoga. Þaðan var hún dregin út á götu. Mikill fjöldi manna tók þar þátt í að murka úr henni lífið með því að berja hana og grýta hana svo með stórum steinhnullingum. Á myndbandsupptökum af morðinu má sá stúlkuna reyna, grátandi og blóðug að komast undan og biðjast miskunnar. En miskunn var enga að hafa og það mátti heyra dynkina þegar hnullungarnir skullu á líkama hennar og hún veinaði af sársauka. Loks hneig hún niður og það var haldið áfram að grýta hana þartil hún lést. Myndir af morðinu voru settar á netið og fóru sem eldur í sinu um heimsbyggðina. Talið er að það hafi ýtt við Íröskum yfirvöldum, sem hófu síðbúna rannsókn. CNN fréttastofan segir að tveir hinna handteknu séu nánir ættingjar stúlkunnar.
Erlent Mest lesið „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Innlent Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Innlent Óttast að lítið þurfi til svo bíllinn springi í loft upp Innlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli Erlent Fleiri fréttir Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Sjá meira