Erlent

Bandaríkjamenn og Pólverjar ræða um eldflaugavarnakerfi

Formlegar viðræður bandarískra og pólskra stjórnvalda um uppsetningu eldflaugavarnakerfis í Póllandi hefjast í dag. Bandaríkin vilja fá að setja upp 10 eldflaugar í landinu sem eiga að geta grandað langdrægum eldflaugum sem skotið yrði frá Íran yfir Atlantshafið.

Í tengslum við eldflaugarnar vilja Bandaríkjamenn svo reisa ratsjárstöð í Tékklandi. Rússar eru afar tortryggnir í garð þessara áforma því þeir telja að þeim sé ekki síður beint gegn sér en Írönum. Því má búast við að málið verði til umræðu á fundi Condoleezu Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna með rússneskum ráðamönnum í Moskvu í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×