Ferguson: Við þurfum að eiga frábæran leik 2. maí 2007 16:45 AFP
Nú styttist í að flautað verði til leiks í síðari undanúrslitaleik AC Milan og Manchester United í Meistaradeild Evrópu. Leikurinn verður að sjálfssögðu sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn og hefst útsending klukkan 18:30. Sir Alex Ferguson segir sína menn þurfa á algjörum toppleik að halda til að komast í úrslitin. Manchester United vann dramatískan 3-2 sigur í fyrri leiknum á heimavelli og Ferguson segir sína menn þurfa að vera tilbúna í slaginn ef þeir ætli sér að tryggja sæti í úrslitunum þar sem Liverpool verður andstæðingurinn. "Við þurfum á öllu okkar besta að halda í þessum leik, enda sáu allir hvað Milan-liðið er sterkt í fyrri leiknum. Við vitum hvað við þurfum að gera - við verðum að eiga stórleik," sagði Ferguson, sem státar af þeim frábæra árangri að hafa aldrei tapað einvígi í Evrópukeppni eftir að hafa unnið fyrri leikinn. "Við verðum að spila okkar leik ef við ætlum okkur áfram og það þýðir að við verðum að sækja. Það gagnast okkur ekkert að ætla að liggja til baka og verjast. Það er mögulegt að við fáum á okkur mark í Mílanó og því verðum við að skora," sagði Ferguson.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti Eiríkur nýr þjálfari Vals Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Sjá meira