Innlent

Segir upphaf Baugsmálsins mega rekja til kvennamála

Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, tók í morgun undir þau orð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar frá því í síðustu viku að upphaf Baugsmálsins hefði mátt rekja til kvennamála.

Í yfirheyrslum vegna 18. ákæruliðar í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, sem snýr meðal annars að skemmtibátnum Thee Viking, sagði Tryggvi enn fremur að hann hefði verið í sambandi við Jón Gerald Sullenberger í júní 2002 til þess að ná fram sáttum í bátamálinu. Í miðju samtali hafi Jón Gerald hins vegar misst sig og sagst ætla koma til Íslands og drepa Jón Ásgeir og þótt aðrir yrðu líka að fara, eins og Tryggvi, yrði að hafa það.

Nokkrum dögum síðar hafi hann fengið tölvupóst frá Jóni Geraldi þar sem fram hafi komið skýringar á þessu háttalagi. Þar hafi Jón Gerald greint frá því að árið 1998, eða fjórum árum fyrr, hafi Jón Ásgeir fengið konu Jóns Geralds með sér í partí og reynt að komast yfir hana.

Við yfirheyrslunar í morgun mótmælti Sigurður Tómas Magússon, settur saksóknari, þeim fullyrðingum Tryggva Jónsson frá því í fyrradag að hann hefði verið án matar í sólarhring eftir að hann var handtekinn við upphaf málsins. Sagði Sigurður Tómas skýrslu sýna að Tryggvi hefði fengið tvær máltíðir á 22 klukkustundum.

Þá lagði Sigurður Tómas fram bókun um að lagt yrði fram rafrænt eintak af falsaða tölvupóstinum sem Jakob Möller, lögmaður Tryggva, dró fram í gær til að sýna fram á hve auðvelt væri að falsa tölvupósta, en sakborningar í málinu hafa í mörgum tilvikum ekki sagst kannast við tölvupósta sem saksóknari hefur lagt fyrir þá. Sagði Sigurður Tómas mikilvægt að ekki yrði lagt fram skjal sem villti um fyrir dómnum. Sagði hann enn fremur um að ræða ritvinnsluskjal sem hefði ekkert með tölvupósta sem finnast í tölvum að gera.

Reiknað er með að yfirheyrslum yfir Tryggva ljúki í dag en á morgun hefjast yfirheyrslur yfir þriðja sakborningnum í málinu, Jóni Gerald Sullenberger, sem sakaður er um að hafa aðstoðað Tryggva og Jón Ásgeir við bókhaldsbrot með því að gefa út tilhæfulausan kreditreikning vegna viðskipta Nordica og Baugs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×