Innlent

Nýr formaður KSÍ verður kjörinn í dag

Nýr formaður Knattspyrnusambands Íslands verður kjörinn í dag, en það er í fyrsta sinn í hátt í tvo áratugi sem slíkt gerist. Þrennt hefur boðið sig fram til formennsku, Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri KSÍ, Jafet Ólafsson fyrrverandi forstjóri Verðbréfastofunnar og Halla Gunnarsdóttir blaðamaður. Samkvæmt skoðanakönnunum virðist Geir standa best að vígi, en það skýrist síðdegis hver verður eftirmaður Eggerts Magnússonar í þessu embætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×