Krefjast lokunar fangabúða í Guantánamo 10. janúar 2007 17:08 Úr Guantánamo-búðunum. MYND/Reuters
Íslandsdeild Amnesty International stendur á morgun fyrir útifundi á Lækjartorgi klukkan 17 þar sem þess verður krafist að að fangabúðum Bandaríkjamanna við Guantánamo-flóa verði lokað. Fram kemur í tilkynningu frá samtökunum að búðirnar hafi nú verið starfræktar í fimm ár og verður blöðrum sleppt á torginu á morgun til að undirstrika kröfuna. Sambærilegar uppákomur og mótmæli munu fara fram í yfir 20 löndum víða um heim.„Íslandsdeild Amnesty International fer jafnframt fram á að ríkisstjórn Íslands og Alþingi fordæmi fangabúðirnar við Guantánamo-flóa opinberlega. Ísland og alþjóðasamfélagið verða að þrýsta á Bandaríkin um að loka fangabúðunum og virða alþjóðalög.Guantánamo er orðið að tákni fyrir svikin loforð Bandaríkjastjórnar um að lögfesta yrði kjarninn í öllum aðgerðum sem gripið yrði til í kjölfar árásanna 11. september 2001. Pyndingar, niðurlæging, mismunun og refsileysi er meðal þess sem á sér stað í Guantánamo. Auk þess eru dómstólar sniðgengnir og skuldbindingar samkvæmt alþjóðasamningum virtar að vettugi," segir í tilkynningu samtakanna.Þar er enn fremur bent á fyrstu fangarnir hafi komið til Guantánamo-flóa 11. janúar 2002. Þeir urðu 750 þegar mest var og voru þá af um 45 þjóðernum. Meðal fanga hafi verið börn allt niður í 13 ára, fólk sem var einfaldlega á röngum stað á röngum tíma og fjöldi einstaklinga sem voru seldir frá Pakistan og Afganistan í hendur Bandaríkjamanna fyrir þúsundir dollara. Nú séu enn um 400 einstaklingar í haldi í fangabúðunum við Guantánamo-flóa og enginn þeirra hafi fengið réttað í máli sínu og enginn hafi komið fyrir dóm.„Það er staðreynd að leyniþjónusta Bandaríkjanna, CIA, hefur starfrækt yfirheyrslustöð í Guantánamo þótt mikil leynd hvíli yfir starfsemi stofnunarinnar. Amnesty International hefur vakið athygli Bandaríkjastjórnar á ásökunum um að erindrekar annarra ríkja, m.a. Kína og Líbíu, hafi verið á flotastöðinni og tekið þátt í illri meðferð á föngum.Sumum fanganna var haldið í leynifangelsum CIA í öðrum heimshlutum áður en þeir voru fluttir til Guantánamo. Guantánamo er miðstöð í neti leynifangelsa og framsals sem Bandaríkjamenn hafa lagt um gjörvallan heim í samstarfi við aðrar ríkisstjórnir í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku, svo dæmi séu tekin. Tími er kominn til að Bandaríkin og samsekar ríkisstjórnir bindi enda á leyndina og misbeitinguna. Ráðstafanir Bandaríkjastjórnar hafa langt í frá aukið öryggi heldur hafa þær veikt mannréttindi og lögfestu sem eru besta vörnin við ógnunum.Bandaríkjastjórn hefur ekki aðeins hundsað alþjóðleg mannréttindaviðmið. Hún hefur einnig komið í veg fyrir eftirlit eigin dómstóla með lögum og reglu í Guantánamo. Í október 2006 skrifaði Bush Bandaríkjaforseti undir lög sem kallast Military Commissions Act sem sviptir bandaríska dómstóla valdi til að fjalla um habeas corpus-kröfur frá erlendum varðhaldsföngum sem teljast „óvinveittir bardagamenn" í Guantánamo og annars staðar. Habeas corpus felur í sér grundvallarvernd gegn handahófskenndu varðhaldi og pyndingum. Amnesty International berst fyrir endurreisn habeas corpus og afnámi eða stórfelldum breytingum á Military Commissions Act," segir að endingu í tilkynningunni.
Mest lesið Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Innlent Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent „Þetta er bara ljótt“ Innlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Erlent Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Sjá meira