Selja kirkjutúnið upp í skuldirnar 25. apríl 2007 06:45 Glæsilegar byggingalóðir eru í túninu við St. Jósefskirkju. Ekki síst verður frábært útsýni úr stórum þakíbúðum. Á innfelldu myndinni sést St. Jósefsskirkja sem kaþólski söfnuðurinn byggði árið 1993. MYND/Anton
Sjálfstæðismenn og vinstri grænir í Hafnarfirði hafa lýst sig andvíga því að kaþólska kirkjan á Íslandi fá heimild bæjaryfirvalda í Hafnarfirði til að leysa fjárhagsvandræði safnaðarins með sölu íbúðarhúsalóða. Bæjarstjórnin samþykkti í síðustu viku að auglýstar yrðu breytingar á aðalskipulagi Hafnarfjarðar þannig að hægt yrði að reisa þrjú þriggja hæða hús með samtals 15 íbúðum á lóðinni við kaþólsku kirkjuna á Jófríðarstöðum. Lóðin hefur verið skilgreind sem byggingarlóð undir þjónustustarfsemi. „Ekki er hægt að fallast á að þótt upplýst sé að kaþólska kirkjan á Íslandi eigi í fjárhagsvanda, réttlæti það að farið sé í brask með lóðirnar, og hvorki sé tekið tillit til Jófríðarstaðasvæðisins sem eins af sérkennum Hafnarfjarðar né þeirra ákveðnu mótmæla sem nágrannar hafa haft í frammi vegna skipulagsins," bókuðu fulltrúar minnihluta Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna á síðasta fundi skipulags- og byggingarráðs áður en bæjarstjórnin samþykkti breytinguna með atkvæðum meirihluta Samfylkingarinnar.Með bókun sinni vísar minnihlutinn í bréf kaþólsku kirkjunnar frá í desember 2005 þar sem fram kemur að söfnuðurinn þurfi á peningum að halda og vilji komi hluta lóðar sinnar í verð. Vegna athugasemda nágranna voru gerðar breytingar á upphaflegri tillögu um byggðina á Jófríðarstaðatúninu. Húsin hafa verið lækkuð, þau færð fjær nálægum leikskóla og aðkoma höfð frá Jófríðarstaðavegi en ekki frá Staðarhvammi. Fulltrúar minnihlutans eru þó enn andvígir. „Rétt þykir að minna á að þegar gerður var samningur við kaþólsku kirkjuna og henni tryggt rými næst kirkjunni var það gert aðallega til að tryggja að kirkjan hverfi ekki og hún fái að njóta sín samanber athugasemdir hönnuðar kirkjunnar. Ennfremur lögðu fulltrúar kirkjunnar á þeim tíma ríka áherslu á að ekki væri byggt nærri kirkjunni," bókaði minnihlutinn í skipulagsráði. Gísli Ó. Valdimarsson, formaður skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar, segir að reynt hafi verið að koma til móts við athugasemdir íbúanna. Í kynningarferli sem nú hefjist gefist íbúunum tækifæri til að tjá sig um nýju tillöguna. St. Jósefskirkja Kaþólski söfnuðurinnn byggði nýja kirkju árið 1993 eftir að St. Jósefs spítali og kapellan þar voru seld. fréttablaðið/anton brink Með bókun sinni vísar minnihlutinn í bréf kaþólsku kirkjunnar frá í desember 2005 þar sem fram kemur að söfnuðurinn þurfi á peningum að halda og vilji komi hluta lóðar sinnar í verð. Vegna athugasemda nágranna voru gerðar breytingar á upphaflegri tillögu um byggðina á Jófríðarstaðatúninu. Húsin hafa verið lækkuð, þau færð fjær nálægum leikskóla og aðkoma höfð frá Jófríðarstaðavegi en ekki frá Staðarhvammi. Fulltrúar minnihlutans eru þó enn andvígir. „Rétt þykir að minna á að þegar gerður var samningur við kaþólsku kirkjuna og henni tryggt rými næst kirkjunni var það gert aðallega til að tryggja að kirkjan hverfi ekki og hún fái að njóta sín samanber athugasemdir hönnuðar kirkjunnar. Ennfremur lögðu fulltrúar kirkjunnar á þeim tíma ríka áherslu á að ekki væri byggt nærri kirkjunni," bókaði minnihlutinn í skipulagsráði. Gísli Ó. Valdimarsson, formaður skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar, segir að reynt hafi verið að koma til móts við athugasemdir íbúanna. Í kynningarferli sem nú hefjist gefist íbúunum tækifæri til að tjá sig um nýju tillöguna.
Tengdar fréttir Skrítið að kirkjan greiði fyrir almenningssvæði Jakob Rolland, prestur í Sankti Jósefskirkju á Jófríðarstöðum í Hafnarfirði, segir einkennilegt að ætlast sé til þess að kaþólska kirkjan standi undir og kosti almenningssvæði. 25. apríl 2007 06:15 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira
Skrítið að kirkjan greiði fyrir almenningssvæði Jakob Rolland, prestur í Sankti Jósefskirkju á Jófríðarstöðum í Hafnarfirði, segir einkennilegt að ætlast sé til þess að kaþólska kirkjan standi undir og kosti almenningssvæði. 25. apríl 2007 06:15