Erlent

Hillary Clinton tilkynnir framboð sitt til forseta

Hillary Clinton öldungadeildarþingmaður og fyrrverandi forsetafrú tók í dag fyrsta skrefið í áttina að framboði í forsetakosningunum 2008 þegar hún tilkynnti á vefsíðu sinni að hún hefði sett á fót nefnd sem heimilar henni að safna fé til framboðsins. Í yfirlýsingunni segist Clinton ætla að spila til sigurs því kominn sé tími til að binda enda á valdatíð Bush-stjórnarinnar. Clinton er sögð eiga allgóða möguleika á að ná kjöri og ef sú verður raunin yrði hún fyrst kvenna til að gegna þessu valdamesta embætti heims.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×