Innlent

Skemmdarverk unnin á sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn

Málningu var slett og krotað var á sendiráð Íslands við Norðurbryggju í Kaupmannahöfn í nótt. Eftir því sem sjónarvottar segja var slett úr eins og einni málningarfötu og þá var krotað á sendiráðið „aluminumindustri ud af Island" sem útleggst á íslensku „Áliðnaðinn burt af Ísland“ sem bendir þess að álversandstæðingar hafi verið að verki.

Lögregla kom í morgun og kannaði verksummerki en ekki hafa fengist viðbrögð hjá forsvarsmönnum sendiráðsins í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×