Forseti Kazakhstan vill láta handtaka tengdason sinn 28. maí 2007 20:34 Nazarbayev forseti er ekki á því að tengdasonur hans eigi framtíðina fyrir sér í pólitík. MYND/AFP
Hópur lögfræðinga frá Kazakhstan er nú í Vínarborg þar sem þeir reyna fyrir hönd stjórnvalda að fá tengdason forseta landsins handtekinn. Tengdasonurinn var sendiherra Kazakhstan í Austurríki þangað til á laugardaginn þegar hann var rekinn af forsetanum. Handtökubeiðnin virðist vera liður í harðvítugri fjölskyldudeilu. Rakhat Aliyev er giftur elstu dóttir forsetans Nursultan Nazarbayevs en hann er ásakaður um að skipuleggja mannrán á tveimur háttsettum bankamönnum. Tengdasonurinn segir hins vegar að málið snúist um að forsetinn sé að reyna að koma í veg fyrir pólitískan frama tengdasonarins. Í dag barst yfirlýsing frá innanríkisráðuneytinu í Kazakhstan þar sem greint var frá því að gefin hefði verið út handtökutilskipun á hendur Aliyev. Hann segist hins vegar saklaus af ákærunni sem sé hreinn tilbúningur. Í viðtali við BBC segir Aliyev að hann hafi fyrir nokkrum mánuðum tilkynnt forsetanum að hann hyggist bjóða sig fram til forseta í næstu kosningum í landinu sem fara eiga fram árið 2012. Stuttu síðar hafi sagan um aðild hans að mannránunum farið á kreik. Hann segist vilja stuðla að umbótum í landinu og að markmið hans sé að gera lífskilyrði þegnanna svipuð og þekkist í Evrópu. Fréttaritari BBC í Kazakhstan segir hins vegar að tengdasonurinn sé umdeildur maður í heimalandi sínu, hann hafi verið viðriðinn fjölmörg hneykslismál og að hann eigi hagsmuna að gæta víða í viðskiptalífi landsins. Fréttaritarinn segir að deilan snúist aðallega um völd og peninga en ekki um lýðræði og velmegun þegnanna. Nazarbayev forseti hefur verið völd í landinu í 17 ár og í síðustu viku breytti hann lögum í landinu á þann veg að hann getur boðið sig fram til forseta eins oft og hann vill.
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fleiri fréttir Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Sjá meira