Vopnahlé samþykkt í Balad í Írak 19. október 2006 12:45 Heill salur af sjeikum samdi um hléið. MYND/AP
Héraðshöfðingjar í Balad-héraði, norður af Bagdad í Írak, féllust í gær á 20 daga vopnahlé í borginni sem hefur logað í átökum milli sjía og súnnímúslima. Röð hefndarárása milli sjía og súnnímúslima hafa kostað 95 manns lífið á fimm dögum í borginni Balad. Borgin er að mestu byggð sjíamúslimum en héraðið í kring tilheyrir súnnimúslimum. Héraðsleiðtogar og fulltrúar beggja trúarbragðanna komust að samkomulagi í gær um 20 daga vopnahlé auk þess sem skipuð var nefnd sem mun reyna að finna langvarandi lausn á víxlhefndunum. Einnig var samþykkt að líkum hinna látnu verði skilað til ættingjanna. Meðal hlutverka nefndarinnar er að grennslast fyrir um afdrif 40 manna sem voru í 13 bíla bílalest sem var snúið af réttri leið á sunnudaginn. Í gær var spennu þrungið andrúmsloft í Balad. Flestir skólar og skrifstofur voru lokuð og öðru hvoru mátti heyra skothríð. Bandaríski herinn skilaði stjórn svæðisins í hendur íraska hernum fyrir mánuði síðan, ekki síst til að geta beitt sér að meira afli að því að tryggja friðinn í höfuðborginni Bagdad. Reyndustu hermenn Írakshers náðu hins vegar ekki að að halda aftur af ofbeldinu og því þurftu bandarískir hermenn að skerast í leikinn í vikunni.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira