Ljóðstafur Jóns úr Vör 28. nóvember 2006 12:00 Óskar árni Óskarsson rithöfundur Hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör árið 2005. Fréttablaðið/Heiða
Lista- og menningarráð Kópavogs efnir til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu „Ljóðstafur Jóns úr Vör“ og er skilafrestur til 15. desember. Þriggja manna dómnefnd mun velja úr þeim ljóðum sem berast og að venju eru veitt vegleg verðlaun fyrir hlutskarpasta ljóðið og fær skáldið einnig til varðveislu göngustaf sem á verður festur skjöldur með nafni þess í eitt ár. Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina en skilyrði er að ljóðin mega ekki hafa birst áður. Ljóðum skal skilað með dulnefni og skal nafn, heimili og sími skáldsins fylgja með í lokuðu umslagi auðkennt með sama dulnefni. Bréfið skal merkja „Ljóðstafur Jóns úr Vör“, Tómstunda- og menningarsvið Kópavogs, b.t. Sigurbjargar H. Hauksdóttur, Fannborg 2, 200 Kópavogur. Aðeins má senda eitt ljóð í hverju umslagi og þess vænst að ljóðunum sé skilað á pappírsstærðinni A-4 eða A-5. Afhending verðlaunanna fer fram á afmælisdegi skáldsins Jóns úr Vör hinn 21. janúar 2007. Nánari upplýsingar um ljóðasamkeppnina má finna á heimasíðu Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is.
Menning Mest lesið Meghan snýr aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Lífið Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lífið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Lífið samstarf Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Lífið samstarf Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira