Innlent

Staða ríkissjóðs styrkist

Heildarskuldir ríkissjóðs hafa lækkað úr 46% af landsframleiðslu árið 1997 niður í um 17% á þessu ári. Þetta skýrist af því að ríkisreksturinn og einkavæðing hafa skilað drjúgum lánsfjárafgangi sem varið hefur verið að stórum hluta til að greiða niður skuldir ríkisins frá fyrri tíð, að því er fram kemur í vefriti fjármálaráðuneytisins.

Í þessu sambandi þarf að hafa í huga að talsverður hluti af lánum sem tekin eru af hálfu ríkissjóðs er ætlaður til endurlána til Lánasjóðs námsmanna og fleiri aðila og aukast því samtímis kröfur ríkissjóðs á þá aðila. Auk þess á ríkissjóður útistandandi verulegar skammtímakröfur í lok hvers árs, einkum vegna skatttekna ársins sem innheimtar eru árið eftir. Með því að draga slíkar lánveitingar og kröfur frá heildarlántökunum fást hreinar lántökur sem gefa betri mynd af eiginlegri skuldabyrði ríkissjóðs og hvernig hún hefur þróast. Á þennan mælikvarða var skuldabyrðin um 33% af landsframleiðslu árið 1997 en lækkar samkvæmt áætlun niður í um 4% í lok þessa árs.

Þá hefur stíft aðhald með ríkisfjármálunum að undanförnu skilað verulegum tekjuafgangi sem hefur gert ríkissjóði kleift að safna upp inneignum í Seðlabankanum þannig að þær eru nú orðnar yfir 100 milljarðar króna samtals.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×