Blair neitar að styðja Brown 24. september 2006 15:16 Blair brosti sínu blíðasta þegar hann mætti til flokksþingsins í morgun. Hann neitar hins vegar að tjá sig nokkuð um brotthvarf hans úr flokknum eða hvern hann vill sjá sem eftirmann sinn. MYND/AP
Tony Blair, leiðtogi Verkamannaflokksins breska, neitaði á flokksþingi flokksins, sem hófst í Manchester í dag, að lýsa yfir stuðningi við Gordon Brown, fjármálaráðherra. Þrátt fyrir mikinn þrýsting neitaði Blair að ræða brotthvarf sitt úr forystu Verkamannaflokksins en hann hefur lýst því yfir að þetta flokksþing sé hið síðasta sem hann sæki sem formaður. Blair neitaði að tjá sig nokkuð um forystubreytingar í flokknum og sagði að flokksmenn mættu ekki gleyma sér í að bítast um forystusæti flokksins á kostnað þess að gleyma að stjórna landinu. Hann rómaði Gordon Brown sem prýðisgóðan fjármálaráðherra sem hafi þjónað fólkinu og flokknum með sóma. Hins vegar endurtók hann ekki, þrátt fyrir áskoranir, orð sín um að Gordon Brown yrði "frábær forsætisráðherra". Hann sagði einungis að hann afneitaði engu því sem hann hefði áður sagt en nú þyrfti að einbeita sér að kjósendum og að framtíð flokksins. Gordon Brown hefur verið talinn líklegasti eftirmaður Blairs en stuðningsmenn Blairs hafa ásakað hann um að skipuleggja leynt og ljóst hálfgerða uppreisn í Verkamannaflokknum í byrjun mánaðarins sem endaði með því að Blair sá sig tilneyddan að lýsa því yfir að hann myndi víkja úr forystu flokksins í síðasta lagi í september 2007.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira