Valdarán í Taílandi 19. september 2006 19:00
Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra Taílands, var steypt af stóli í herforingjabyltingu í dag. Talsmenn hersins segja valdaránið hafa verið nauðsynlegt vegna spillingar ríkisstjórnarinnar og lýðræði verði komið aftur á hið fyrsta. Málsatvik eru enn afar óljós en svo virðist að síðdegis, eða um miðnætti að staðartíma, hafi skriðdrekar umkringt stjórnarráðið í Bangkok og hermenn ráðist þar til inngöngu. Í kjölfarið lýsti Thaksin Shinawatra forsætisráðherra yfir neyðarástandi í landinu en hann er staddur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York og sagðist ennþá vera við völd. Nú skömmu fyrir fréttir lýstu leiðtogar klofningshóps úr hernum því hins vegar yfir að herlög giltu í landinu, ríkisstjórnin hefði verið leyst frá völdum og stjórnarskráin felld úr gildi. Þeir segja valdaránið nauðsynlegt vegna langvarandi spillingar ríkisstjórnarinnar og lýðræði yrði aftur komið á eins fljótt og frekast væri kostur. Lengi hefur verið orðrómur um að herinn hygðist láta til skarar skríða gegn ríkisstjórninni enda hefur Thaksin verið vægast sagt umdeildur. Hann leysti upp þingið í febrúar og flokkur hans sigraði svo í kosningum í apríl en þær voru síðar dæmdar ólöglegar og því átti að kjósa á ný í haust. Enn virðist ekki hafa komið til blóðsúthellinga í valdaráninu en hvorki liggur fyrir hvort herforingjarnir hafi öll völd í hendi sér né hvenær Thaksin snýr aftur heim. Fimmtán ár eru frá því að herinn hafði síðast bein afskipti af stjórnmálum Taílands.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent