Helgidómurinn á HM 8. júní 2006 14:16
Ég held að það sé ekki hægt að finna fleiri fréttavinkla á þýska liðið, hvílík umfjöllun, og samt þessi tortryggnistónn í öllu. ,,Við verðum að skora snemma í leiknum'' sagði einn snillingurinn í fréttum í morgun, einsog það skipti öllu máli. Leikurinn er 90 mínútur, ef lið skorar fleiri mörk en andstæðingurinn innan þess tímaramma, þá vinnst leikurinn. Og hvílík leiktjöld fyrir opnunarleikinn á morgun. Þjóðverjum fannst gamli Olympíuvöllurinn lélegur og byggðu nýjan, Allianz völlinn. Nú um stundir er allt kennt við fyrirtæki, Fylkismenn spila í boði Bónus, og foreldrafélög geta ekki haldið vorhátið án þess að fá gefins sódavatn og flögur. Það verður að segjast að þessi nýi völlur hér í Munchen er stórkostlegur, ég hef verið á Nou Camp í Barcelona, Péturskirkjunni í Róm, kveikt á kerti í Landakotskirkju, en þetta er stórfenglegasti helgidómur sem ég hef komið í lengi. Ég sit hér í stúkunni, vallarverðir í vínrauðum smekkbuxum eru að klára að strika völlinn, eða græna teppið öllu heldur, grasið með ólíkindum slétt. Það vantar bara altaristöflu af Joan Cruyff, þá væri það fullkomnað. Á forsíðu bæjarblaðsins sem ég er með les ég sögur af meiðslum leikmanna á HM, smávægilegum og stórum, Ballack verður ekki með Þjóðverjum í fyrsta leik, og sjálfur Cisse er fótbrotinn, sem mér finnst strax veikja annars sterka sóknarlínu Frakkanna til muna. Rooney er kominn aftur til Þýskalands frá Englandi, hann fór aftur í sónar og allir segja að hann verði með á HM. Hann sýndi tattóið sitt á æfingu, stóran og mikinn kross, kannski er hann svona trúaður, en ég trúi því staðfastlega að hann verði að spila fyrr en seinna með Englendingum, ef þetta á ekki að verða ein niðurlægingin til. Þýska liðið kemur á æfingu hingað á eftir, klukkan sex, við fáum 15 mínútur til að horfa á þá og mynda, svo verðum við reknir út. Ég er spenntur að sjá hvort þeir æfa saman markmennirnir og óvinirnir Oliver Kahn og Jens Lehmann. Ég sá þá síðast hita upp á Laugardalsvelli fyrir landsleikinn heima, Sepp Mayer gamli lét þá taka teygjuæfingar og svo átti Kahn að skjóta fimm boltum fyrir utan teig á Jens. Hann miðaði greinilega alltaf á skeytin, því allir boltarnir fóru yfir, sumir meira að segja frekar hátt yfir markið. Það átti greinilega ekki að gefa Jens litla eitt gramm af æfingu fyrir leikinn, enda var hann þá varamarkmaður. Hann er aðalmarkmaður á morgun og mér skilst að tvær sjónvarpsvélar séu helgaðar svipbrigðum Olivers Kahns á varamannbekknum, þar sem hann bíður þess að Lehmann geri mistök. Ekki sérlega þjóðlegt þar sem þeir eru í sama liði, en þýskt.
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti RFS - Vestri | Ævintýrið heldur áfram Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Ítalía nær ekki að krækja í Guardiola Modric tekur slaginn áfram í Mílanó RFS - Vestri | Ævintýrið heldur áfram „Klopp er tvímælalaust rétti maðurinn“ Arnór í leyfi frá störfum Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Segir að ítalski fótboltinn þurfi að horfa til Spánar Barcelona kaupir Adeyemi Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Meiddir Valsmenn, ævintýri Vestra og svar Stjörnunnar Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar Orri og félagar tolleruðu heimsmeistarann sinn Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Er nýi Haaland íslenskur? Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Sjá meira