Starfsmaður FIFA sagður útvega leikmönnum kvenfólk 2. júní 2006 11:01 Leikmenn Paragvæ. Til í slaginn !
Starfsmaður FIFA, alþjóðaknattspyrnusambandsins, sem jafnframt er aðstoðarmaður og túlkur landsliðs Paragvæ á HM í knattspyrnu sætir nú ámæli fyrir tilraunir til að koma á kynnum milli leikmanns liðsins og sænsks blaðaljósmyndara. Ljósmyndarinn, Emelie Aspelund og blaðamaðurinn Maria Nordström, sem báðar starfa fyrir Dagens Nyheter, höfðu verið sendar til Árósa í Danmörku til að fylgjast með landsliði Paragvæ. Þar lék liðið æfingaleik gegn danska landsliðinu á laugardag. Að leik loknum ræddu blaðamenn og ljósmyndari við leikmenn og þjálfara Paragvæ og nutu aðstoðar Manuel Hoffman, starfsmanns FIFA en sá er aðstoðarmaður Paragvæ og túlkaði samskiptin. Starfsmenn Dagens Nyheter og landsliðshópur Paragvæ bjuggu á sama hóteli og segir Emelie Aspelund að skömmu eftir að hún var lögst til svefns hafi síminn hringt á hótelherbergi sínu. "Þetta var klukkan eitt að nóttu. Manuel Hoffman, starfsmaður FIFA var í símanum og sagði að einn leikmanna landsliðs Paragvæ vildi hitta mig þá þegar um nóttina til að kynnast mér betur," segir Aspelund. Aspelund segist hafa gert athugasemdir vegna þessa við Hoffman morguninn eftir og sagt slík samskipti óviðeigandi. Hoffman svaraði um hæl að það væri erfitt að draga línur í starfi sem þessu, hversu langt ætti að ganga. Í Dagens Nyheter er haft eftir Hoffman að hann sjái ekkert athugavert við símtalið. Það sé í hans verkahring að aðstoða leikmenn. Þegar hann er spurður hvort það sé líka í verkahring starfsmanna FIFA að útvega leikmönnum liðanna á HM kvenfólk á hótelherbergi um miðjar nætur, svarar Hoffman; "ég get ekki tjáð mig um innihald einstakra símtala."
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Fleiri fréttir Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Sjá meira