Fótbolti

Ruud van Nistelrooy á leið til Milan?

Ruud van Nistelrooy fagnar marki sínu á móti Kamerúnum þann 27. maí síðastliðinn
Ruud van Nistelrooy fagnar marki sínu á móti Kamerúnum þann 27. maí síðastliðinn MYND/AFP

AC Milan hafa samkvæmt ítölskum fjölmiðlum sett Nistelrooy efst á óskalistann sem arftaka Shevchenko sem er á förum til Chelsea.

Talsmaður Milan sagði við fjölmiðla að Nistelrooy væri sá sem þeir vildu og að hann væri einn mjög fárra sem gæti fyllt skarð Shevchenko. Nistelrooy gæti farið á svo lítið sem 8,4 milljónir punda því að Sir Alex vill losna við hann sem fyrst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×