Fótbolti

AC Milan vill Gallas

Að því er fréttir herma þá vilja AC Milan menn fá William Gallas upp í Andriy Schechenko. Talið er að vermiðinn á Schechenko sé um 35 milljónir punda, og er það nokkuð víst að nóg er til í gullkistu Abramovich til þess að reiða þá upphæð fram.

Talið er að knattspyrnustjóri Chelsea, José Mourinho vilji aðeins bein viðskipti vegna kaupa á Schechenko, og sé ekki tilbúinn að skipta Gallas.

Milan menn munu reyna að fá Gallas, sem hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea, og á aðeins 12, mánuði eftir af samningi sínum hjá félaginu.

Mourinho hefur hingað til ekki viljað hlusta á nein tilboð í Gallas, og var Milan mönnum neitað er þeir buðu 4, milljónir punda í leikmanninn






Fleiri fréttir

Sjá meira


×