Ísöld í Úkraínu 10. febrúar 2006 22:16
Íbúar í borginni Alchevska í Austur-Úkraínu reyna ýmislegt til að halda á sér hita í þeim fimbulkulda sem þar geisar. Bilun varð hjá hitaveitu á svæðinu fyrir rúmum tveimur vikum og íbúar í borginni segja að þar sé nú ísöld. Gríðarmikill snjór þekur götur borgarinnar og hefur allt niður í 38 gráðu frost mælst þar. Bilunin nú og afleiðingar hennar eru einsdæmi þrátt fyrir að hita- og rafmagnsveitukerfi landsins séu fornfáleg og gefi sig oft undan miklu álagi. Tekist hefur að koma hita aftur á sumstaðar í borginni en 270 heimili eru enn án hitunar og er það talið hafa áhrif á líf um 20 þúsund borgarbúa. Búið er að flytja 11 þúsund börn til annarra borga í Úkraínu og stjórnmálaflokkar keppast við að gefa íbúum í Alchevska peninga, gufukatla og farmiða til annarra svæða til að vinna sér inn stuðning fyrir þingkosningarnar í mars. 4.500 manna lið tæknimanna hefur unnið baki brotnu við að reyna að komast fyrir bilunina. Á meðan standa opinberir starfsmenn utan dyra og höggva eldivið úr gömlum húsgögnum sem fólk hefur gefið frá sér. Heimilislausir hafast við í neyðarskýlum en þeir hafa orðið verst úti í vetrarhörkunum. Maria Sutkovskaya er 68 ára. Hún hefur klæðst fjölmörgum ullarpeysum og þykkum vetrarjakka síðan hitinn fór af borginni. Hún býr ein í íbúð sinni en þar fer hitinn ekki yfir þrjár gráður. Viktor Yushchenko, forseti landsins, hefur heitið því að búið verði að hleypa hita aftur á í borginni á morgun. Íbúar eru þó ekki bjartsýnir um að það takist.
Erlent Fréttir Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Fleiri fréttir Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Sjá meira