Innlent

Gera kröfu um ógildingu úrskurðar

Þorsteinn Hilmarsson Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir það rétt hvers og eins og leita réttar síns fyrir dómi.
Fréttablaðið gva
Þorsteinn Hilmarsson Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir það rétt hvers og eins og leita réttar síns fyrir dómi. Fréttablaðið gva

Hópur einstaklinga hefur stefnt íslenskum stjórnvöldum og Landsvirkjun vegna umhverfismats- og úrskurðar setts umhverfisráðherra, Jóns Kristjánssonar, við mat á umhverfisáhrifum Norðlingaölduveitu í Þjórsárverum. Málið var tekið til aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Hópurinn gerir þá kröfu að úrskurður umhverfisráðherra frá því í janúar 2003 og úrskurður Skipulagsstofnunar frá því í ágúst 2002 verði ógiltir.

Katrín Theo­dórsdóttir, lögmaður einstaklinganna sem að málinu standa, fór í gegnum liði sem að mati einstaklinganna geta hver fyrir sig leitt til ógildingar á úrskurðunum.

Katrín hélt því fram við aðalmeðferð málsins að skipulagsstjóri, Stefán Thors, hefði verið vanhæfur til þess að fjalla hlutlaust um málið þar sem sonur hans, Stefán Gunnar Thors, hefði verið einn helsti starfsmaður Landsvirkjunar við gerð skýrslu vegna Norðlingaölduveitu.

 



 

Tillaga landsvirkjunar um 568 metra hátt lón Virkjun í Þjórsárverum hefur verið deilumál í langa tíma en sátt skapaðist, að minnsta kosti til skamms tíma, um úrskurð Jóns Kristjánssonar, setts umhverfisráðherra, vegna Norðlingaölduveitu.

Stefán Gunnar, sem er fagstjóri skipulags- og umhverfismála VSÓ Ráðgjafar og hagfræðingur að mennt, þvertekur fyrir það að tengsl þeirra feðga hefðu haft áhrif á vinnu þeirra. Stefán Gunnar kom að gerð matsskýrslu vegna Norðlingaöldu ásamt fleirum. "Um þetta mál var rætt fyrir fjórum árum og þá var leitað til lögfræðinga og umhverfisráðuneytisins, sem staðfestu að tengsl okkar hefðu ekki áhrif á vinnubrögð okkar."

Stefán Thors, skipulagsstjóri, tekur í sama streng. "Það var farið aftur yfir þetta þegar Jón Kristjánsson var settur umhverfisráðherra í þessu máli og hann komst að þeirri niðurstöðu að tengsl okkar hefðu ekki áhrif á vinnu við þetta verkefni."

Katrín Theodórsdóttir

Katrín gerði miklar athugasemdir við það að fallist hefði verið á mótvægisaðgerðir, með úrskurði setts umhverfisráðherra, sem gætu valdið miklu umhverfistjóni einar og sér, án þess að tjón af völdum þeirra aðgerða hefði verið metið sérstaklega. Einnig sagði Katrín hagkvæmnisjónarmið hafa stýrt að miklu leyti vinnu við umhverfismatið, án þess að gert sé grein fyrir samfélagslegum ávinningi með einum eða öðrum hætti. Að auki gerði Katrín grein fyrir því að skort hefði á lögbundna kynningu á set­lónum, haugsetningu og leiði- og varnargörðum vegna mannvirkja austan Arnarfells.

Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, segir það rétt einstaklinga að leita réttar síns fyrir dómi ef þeir telja á sér brotið. "Það er lögbundinn réttur fólks að leita réttar og það er ekkert óeðlilegt þó stefnendur í þessu máli vilji fara með málið fyrir dómstóla, ef þeir telja á sér brotið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×