Erlent

Þrjár bílsprengjur í Bagdad

MYND/AP

Það var blóðugur sunnudagur í Írak í gær. Að minnsta kosti fimmtíu manns féllu í þremur bílsprengjutilræðum í Bagdad, höfuðborg landsins. Þá særðust um eitt hundrað manns.

Frá þessu greindi innanríkisráðuneyti landsins. Sprengingarnar urðu allar um svipað leyti í Sadr-hverfi shita í borginni og sprungu allar á fjölförnum verslunargötum. Ekkert lát virðist ætla að verða á sprengjuárásum í landinu en yfir 2200 bandarískir hermenn hafa fallið í landinu frá því þeir réðust inn árið 2003






Fleiri fréttir

Sjá meira


×